Ólafsfjörður...
er heldur sorglegur bær. Já, ég er fordómafull í augnablikinu. Mín reynsla af því þorpi er:
-Þar eru fleiri snjósleðar en manneskjur
-Þar eru meiri líkur á að verða fyrir snjósleða en bíl
-Eina sem fólkið getur gert sér til dægrastyttingar, já og eða lífstyttingar er það að vera á snjósleða, ungir sem aldnir, já, það voru 7 ára krakkar að hoppa yfir hóla á snjósleðum. Ískyggilega nálægt fólksbílunum okkar...
-Á skemmtistað í bænum var 44 ára karlmaður, með tattúverað Artic Cat snjósleðamerkið á upphandlegginum sínum, auk þess að maðurinn var dauðadrukkinn um kvöldmatarleytið og sagði verulega misgáfulega hluti samfara því að spila Live 8 tónleikana mjög hátt, sem var ekkert svo slæmt í sjálfu sér... O jæja.
-Ágætis karl, að nafni Frímann. Þeir sem vita að hann er ekkert alslæmur, þrátt fyrir að vera frekar uppáþrengjandi, alltaf í sömu fötunum, fer sjaldan í sturtu... Nei nei, hann gaf okkur ókeypis áfengi og leyfði okkur að spila eins mikið Pool og okkur lysti. Hann er svona - - = +, held ég.
Annars var bara tremma gaman hjá okkur Valborgu, Helga og Birki í þessari þriggja daga brettaferð. Við keyrðum norður og komum okkur fyrir í pínku litla kofaræksninu sem við leigðum okkur(2 herbergi og klósett). Síðan ætluðum við að fara að skíða þarna á Ólafsfirði en þegar við komum var kl. 1 mínutu yfir 5 sem þýddi að skíðasvæðið var lokað. Við dóum ekki ráðalaus og fundum okkur brekku í bænum og lékum okkur þar í 2 klukkustundir.
Ég var að stíga mín fyrstu brettaspor, gekk það bara misvel, en ég eyddi ekkert alltof miklum tíma á rassinum og náði tökum á þessu tiltölulega fljótt, að sögn strákanna var ég virkilega fljót, en það er annað mál!
Jæja, svo daginn eftir ætluðum við að fara á skíði í Hlíðarfjalli á Akureyri og hitta Alexander, Bjarna, Erling og Jón Andra, en það var ekki stemmari fyrir því í ljósi þess að það var óbærilega mikið af fólki og snjórinn mengaður og loftið einnig þá var ákveðið að snæða á Greifanum. Þar tókst mér að sjálfsögðu að klúðra einu og öðru, eins og það var einhver takki á borðinu, sem ég að sjálfsögðu ýtti á af einskærri forvitni, en nei nei nei, var þetta ekki svona þjónabjalla... úbbósí. Hráki í mat, anyone? Ég var allavegana ekki vinsæl hjá þjónustufólkinu þarna.
Svo var stefnan tekin á Dalvíkurskíðasvæðið,náðum við að vera þar í rúman klukkutíma, og þar af alveg hálftíma eftir lokun, þeir leyfðu okkur að vera þarna frítt, Dalvíkingar eru menn að mínu skapi! Ég prófaði í fyrsta sinn á ævinni að taka diskalyftu á snjóbretti, og var það verulega hetjulegar tilraunir sem voru gerðar, en ég komst nú varla langt fyrst um sinn. Datt alltaf af eftir svona 10 metra af lyftunni! Hahaha :-D Svo var bara tjillað í pottinum og spilað pool, uppskera dagsins: Gríðarlegar harðsperrur í upphandleggjum, framhandleggjum og öxlum, plús smá magaeymsl.
Nokkur eftirminnileg orð:
-bux
-dýn
-Dau-ði!
-Man!

Daginn eftir tók okkar átta manna hópur daginn tiltölulega snemma og skellti sér á skíði og bretti á Dalvík. Ég get stolt sagt að ég komst klakklaust upp skíðalyftuna sjö sinnum, og ég komst heil að höldnu niður brekkuna líka sjö sinnum, þó svo að ég hafi alveg fengið minn skerf af detti og velti... Þrír marblettir. YEAH! Það telst samt mjög vel sloppið finnst mér miðað við suma... þá á ég við að þegar maður brettaði fram hjá blóðpollinum hans Bjarna. Greyið drengurinn fékk skíði í andlitið! Heppinn að fá það ekki í augað! Úff, en næst þegar ég fer á bretti þá ætla ég mér að læra að sviga, bremsa á tánum og svo hoppa af ramp... újeh!
Þetta var rosalega skemmtileg ferð og ég þakka öllum kærlega fyrir mig.


8 Ummæli:
Vá, þetta var geðveik ferð, takk enn og aftur fyrir mig:)
Þetta er ferð sem ég mun aldrei gleyma.
Já, það er satt. Þú ert meðal bestu byrjenda sem ég hef séð!
einhver í pottastuði? ;)
Svo auðvitað gullmolinn: "Grýlutré"
Næsta mál á dagskrá er að borga fyrir ferðina...
Já, skemmtileg ferð. Ég vil bara nýta tækifærið og þakka fyrir mig líka.
Þröngt máttu sáttir sofa, alveg merkilegt hvað við gátum nýtt þetta litla pláss vel.
:o)
Verst er að páskafríið er að klárast, no fun and no games no more.
until next time...
"
Daginn eftir tók okkar átta manna hópur daginn tiltölulega snemma"
Emh hélt við hefðum farið á skíði um eitt - tvöleytið. En annars skemmtileg ferð.
p.s.
Hey þetta er dýna ekki neitt helvítis dýn!!!!!
Hahahahhahahahaha! :-D
Sko ég sagði líka tiltölulega snemma... það þýðir ekki snemma... hehehehe:-D
Og jú Alexander góður, algjört dýn!
:o)
Skrifa ummæli
<< Heim