mánudagur, febrúar 20, 2006

Ég ætla að blogga, vúhú,

kæru vinir.


Ég er ekki búin að vera skemmtilegur bloggari upp á síðkastið og ég ætla hér með að gera betur. Ég er búin að vera stödd á óþægilegum punkti í lífinu en það er að greiðast úr því núna. Svo allir dansa conga á eftir moi! :-D

Nýjustu fréttir:

-Ég er byrjuð að æfa sund á ný! Ég hlakka svo rosalega til að komast í form og synda hratt og hafa það gaman.
-Það var konudagur á sunnudaginn og ástin mín hann Þórir var algjört yndi og fór með mig í Bláa Lónið, það var yndislegt. Ég elska þig Þórir. Þú ert frábær og þú veist það. :*
-Árshátíð Framtíðarinnar var líka í vikunni sem leið og var þar djammað og djúsað án nokkurra vandræða. Det Betales, norskt bítla coverband, stóð fyrir sínu og heillaði okkur flest upp úr skónum.
-Það eru 2 vikur í páskafrí og það eru einungis rúmar 7 vikur eftir af skólanum og svo koma vorprófin. Hrikalega er tíminn fljótur að líða.
-Ég er að fara á MH-árshátíðina, mitt fyrsta ball hjá öðrum skóla en mínum eigin. Vúhú, ég spái miklu gamani.

Ég er frekar sátt við tilveruna núna.

En það sem þarf að gerast í náinni framtíð:
-Ég vil hitta Pykil mína. Pykill, við verðum að faðmast á MH-árshátíðinni á miðvikudag!
-Þarf að læra tölvufræði og skilja rökrásir.
-Hætta að hanga á MSN. Það er enginn tilgangur með því.

Lifið heil og hugsið jákvætt, því að, trúið mér, það er svo miklu léttara.

2 Ummæli:

Þann 12:42 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Þetta er án efa sáttasta blogg sem ég hef lesið!
ég varð svo roslaega glöð af að lesa það... lífslöngunin kom strax aftur eftir að hún var nokkurn veginn farin eftir að hafa lesið bloggið hans Kristjáns um kristilegt barnaefni
(eh, þetta er djók)
awesome blogg! :D

 
Þann 8:57 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Það eru ekkert 2 vikur í páskafrí, frekar svona mánuður og 2 vikur.

 

Skrifa ummæli

<< Heim