"Sjaldan vex barni annað höfuð"

sagði Saga Garðarsdóttir svo snilldarlega í gær í viðureign MR-inga við Verzlinga á Morfís keppninni. Og við unnum, að sjálfsögðu, því að liðið okkar er skipað snillingum. Jón Eðvald og Gunnar Örn voru líka frábærir. Jón er bara snillingur, múskatolía! Hverjum öðrum en honum dettur svo endemis snilld í hug? :-D Þessar ræður hans voru með þeim betri sem ég hef heyrt barasta. Ég skemmti mér frábærlega.
En allavegana, þá er ég að blogga núna, jibbí!
Ég á sko að vera taka til, en, það er alltaf freistandi að gera eitthvað allt annað þegar svo stendur á. Ekki satt? Mig langar í sund núna, en það er alltaf svo fjandskoti erfitt að finna einhvern til að koma með sér. Ég átti einu sinni tryggan sundfélaga en ekki lengur... bömmer það. En já, ég hlýt að finna einhver sprækan einstakling til að koma og synda með mér og liggja í heita pottinum. :-) (af hverju er ég að tala við sjálfa mig á bloggi?)
Svo er bekkjarpartý í kvöld! SIEG HEIL! Frábært, ekki veitir nú af segi ég. Loksins eitthvað núna. Verður gaman að því, ó já. En hmmm... Já, því miður töpuðum við Gettu Betur viðureigninni við MA. Helvítis kjánarnir litlu. Þeir voru svo stressaðir að þeir gleymdu að kjafta sig út úr þessu og blaðra endalaust þangað til að allt var komið. En það þýðir ekkert að vera bitur, það sem er búið og gert er það bara. Því miður.
Nú ætla ég að drífa mig og taka til. YEAH:-*


6 Ummæli:
Ich heisse Superfantastisch!
Ich trinke Schampus und Lachsfisch!
Þú sérð, MR er bara besti skóli í heimi og þú ert bara besta kærasta í heimi! :D
Verzlinga?!!!
með stórum staf? og z?
ó nei, fussum svei við sýnum þeim ekki á virðingu!!
kallaðu þá vesslinga með litlu, nú eða nemendur við FK (fjölbrautaskólinn við kringluna)
FB og FÁ= "félagsheimilið" í breiðholti/ármúla ;) :D
"þeim ekki þá virðingu!!"
á það að vera...
OMG, ég er best. Þórir er bestastur samt. HAHA, BURNED(myself)! En þarna, vá, þetta með "félagsheimilið" er bara fokking fyndið! Og tja, ég var nú ekki að sýna neinn sérstaka virðingu beint, ég ætlaði að kalla þá vesalinga en þá hefðu lesendur ef til vill ekki áttað sig á hvaða aumingjar væru um að ræða.... en ég get svo sem breytt þessu, ef það er það sem gleður ykkur og þá kannski mest ákveðinn aðila sem heitir Stefán... hmm?
ohh, FREUDE FREUDE!!
MH mun vinna MR í úrslitum, og þá mun ég hlæja og þið gráta...
Svoleiðis virkar bara Darwinisminn, þeir sem eru gáfaðri munu fá fyrsta sætið.
Skrifa ummæli
<< Heim