þriðjudagur, febrúar 07, 2006

To stand on naked trays (að standa á berum bökkum)



Já, ég hef ekki haft mikið til að blogga um, við Þórir hættum saman enn einu sinni, en það varði ekki lengi svo við erum tekin saman aftur á ný. :o) Jeij!:-D
Skóli.... Já, skólinn er enginn dans á rósablöðum, heldur helvítis púl, fyrir þá sem læra ekki heima... Svona fólk eins og mig. Ég þarf virkilega á hugarfarsbreytingu á að halda, hvatningu... Einhverju. Svo er ég forfallinn Tetris sjúklingur! Ég er orðin fáránlega góð í þessum bölvaða leik, metið mitt í Tetris á leikur1.is er 11022 eða eitthvað álíka. Sem er sjúkt. Bilun. Leggið mig inn á hæli bara. This is not normal. Eða: þetta er ekki normið.
Mig langar að vera dugleg. Vera hress og duglegur námsmaður. Sjáum til hvernig það mun ganga. Stay tuned, like a good guitar.

3 Ummæli:

Þann 8:15 e.h. , Blogger Einherjinn sagði...

Ticking away, the moments that make up the dull day.
Þú þarft ekki hvatningu. Þú þarft bara að vera, þá kemur hún að sjálfsdáðum, sannaðu til.
Hvernig sem er, í gegnum vini, ættingja, atburði.
Hún kemur.
Þarft bara von

 
Þann 1:58 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...


vei
gaaaa

 
Þann 10:42 e.h. , Blogger Storeide sagði...

það er hægt að spila tetris í sjónvarpinu mínu.
mér finnst það gjeðgt.

 

Skrifa ummæli

<< Heim