Páskafrí
Já, núna er páskafrí. Þetta er varla frí, í ljósi þess að ég ætti að vera eyða öllum deginum í lærdóm, þá er það eina sem ég er búin að gera lærdómlegt er að lesa í Egils sögu. *Eitt klapp*En ég gæti líka sagt að ég væri að læra ensku þegar ég horfði á Buffy the Vampire Slayer & Angel ótextað. Og núna stendur kötturinn minn fyrir skjánum og biyrgir mér sýn á skjáinn! Hann er að fylgjst með stöfunum koma. Þetta er svolítið fyndið sko. Og þið verðið að afsaka stafsetningarvillur, þvi að ég sé ekkert hvða ég er að skrifa í augnablikinu...
En ég er einu skrefi nær að fara læra, tók gamalt stærfræðipróf fram, og stærðfræðibókina, og ætla mér að reikna þetta próf. Núna má hann Giz færa sig svo að ég geti haldið áfram minni vinnu hér.
Svo er líka hægt að segja að misgáfulegir hlutir áttu sér stað á Grímuballi MR, í ljósi þess að ég var frekar ölvuð... og já. Samt skemmtilegt ball.
Og á morgun er ég að leggja af stað í skíðaferð ásamt Birki, Hlega og Valborgu, það mun eflaust vera mikið stuð og mikið svall. Újeh, þið fáið að heyra meira af því síðar! Trúið mér. :-D
Þangað til... blessuð!


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim