Ich mache eine Pause jet!
Já, nú er ég í örlitlu hléi frá mannkynssögulestri og ég verð að viðurkenna að seinasta blogg var heldur fátæklegt. En ég hef ágæta skýringu á því sem þið ráðið hvort að þið takið gilda: Ég var í spennufalli eftir að hafa verið úber stressuð fyrir ökuprófið sem ég náði þó með smá stefnuljósa veseni, það er karlinn gaf mér mínusa fyrir að gefa ekki stefnuljós þegar ég var að bakka í stæði og hann gaf mér líka mínus fyrir að gefa stefnuljós of seint. En annars var maðurinn sáttur við mig. Enda var ég mjög skilningsrík hvað varðaði starfið hans, það er hvað það hlyti a ðvera erfitt að sitja í bíl alla daga. Hann sagði mér að þetta væri mjög erfitt því að hann þyrfti að fylgjast með ökunemanum, veginum og umferðinni og vera tilbúinn að grípa inn í ef eitthvað brygði út af. Svo að maðurinn var bersýnilega dauðleiður á þessu. Svo að prófið mitt var tæpur hálftími. Hehe! En já, ég fór með mömmu í gær niður í Borgartún til að biðja þau að senda ökuskírteinið mitt niður á Löggustöð svo ég geti sótt það á afmælidaginn, það er á sunnudaginn(sem er á morgun)! Og við lentum á góðri afgreiðsludömu, sem betur fer, það munaði voðalega litlu að gamla, gribbulega, gráa feita konan með gleraugun sem horfði illilega á mig hefði átt að afgreiða mig, því að það er ekkert sjálfsagt að þær afgreiði mann með því að gera manni þennan greiða, heimild Knútur ökukennari. En stúlkan sem við lentum á var voðalega indæl og sagði þetta lítið mál, ég fékk hana meira segja til að hlæja þegar ég sá myndina af mér í tölvunni...:Ég: Ojjjjj! Ég er eins og froskur :-D :-/"
Stúlkan:"Ahahahhahahahha, FROSKUR?!? Hehehe."
Mamma:"Nei nei Hildur mín, hvað ertu að meina?"
Ég: Jú, kemur þetta nokkuð svona á ökuskírteininu?
Stúlkan"Nei, eða ég veit það ekki..."
Kannski, verð ég eins og froskur á ökuskírteininu mínu, jeij! Kannski ekki... Vona ekki, en samt, þá geta allir gert grín að því og sagst þekkja frosk sem kann að keyra.
En já, elskykkurógómógo!
Bless!


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim