Suuvesi* sokkaball
* þýðir munnskol á finnsku!Já, sælinú góðir hálsar, mér leiðist heilósköp núna seint á laugardagskveldi, aðfararnótt sunnudags. Aðframkomin af þreytu, eftir hið gríðarlega skemmtilega Sokkaball 4. bekkjar, sem var rosalega vel heppnuð ferð, er seint mun gleymast! Með harmonikkupolkaskansdans, spilerí, brjáluðu sundlaugarpartý með ískaldri innilaug og sjóðandiheitum potti(jafnaði út kuldann). Ég skemmti mér konung/drottninglega og er ég afar fegin að hafa ákveðið að fara, þó svo að það væri enginn stemmari fyrir þessu hjá bekknum mínum, NB: við vorum þrjár úr bekknum sem fórum. Óttalegir félagsskítar sem þessir bekkjarfélagar mínir geta verið.
Eftir að ég kom heim í dag fór ég niður í bæ að hitta Pykil í kolaportinu, þar keypti ég mér úr og hún keypti sér gleraugu! Mjög gaman að því! Eftir það kíktum við á Brennsluna, þar fékk ég mér Amerískar pönnukökur með hlynssírópi, algjört hnoskjæti. Pykill fékk sér svart kaffi. En það skiptir ekki öllu. Ég get þó sagt ykkur það að þegar við vorum að labba niður og út þá kemur maður á móti okkur upp tröppurnar og stoppar og ælir beint á pallinn! Ég greip andann á lofti og var í losti yfir þessu. Náði ekki alveg að meðtaka þetta, svo aftur, AFTUR gubbar maðurinn á sama stað! Ekkert smávegis sem kom upp úr honum. Hann hafði greinilega fengið sér of mikið að drekka því að þetta var næstum allt vökvi. Barþjónn kom askvaðandi að og við Pykill hlupum út í heldur miklu sjokki. Við gengum saman að Lækjartorgi og ýmsar spurningar og getgátur komu upp um þetta annarlega ástand mannsins. Í ljósi þess að klukkan var aðeins fjögur eftir hádegi þá er ekki beint eðlilegt, ef nokkurn tímann að nokkur manneskja æli bara á gólfið. Mér var óglatt næstu 2 tímana.
En við fórum svo upp í Smáralind að skoða þar. Núna er ég víst búin að skipta yfir í Ogvodafone, reyndar aðeins gegn því að ég fengi 2000 kr inneign og að ég mætti skipta aftur yfir til Símans ef að ég vildi. Þannig að ég fékk inneign ókeypis! HAHA!
En já, ég var í afmæli hjá elsku Ingunni, veglegar veitingar og smá nostalgia í gangi, vorum að horfa á upptökur af bekkjarskemmtun frá því í 8. bekk og eitthvað flipp úr 9. bekk. Alveg æðislegt.
En ég ætla að hætta þessu masi, góða nótt.


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim