ÉG ER SVO DUGLEG!
Nú...í fyrsta lagi það að ég kom á réttum tíma í skólann. Busaballið var búið upp úr eitt og ég sofnaði svona 2. NotaBene; 9 mættu í fyrsta tíma í morgun í bekknum mínum. Svo svaf ég ekki í neinum tíma, fór í fyrsta leikfimi tíma vetrarins hjá mér, í stöðvaþjálfun og var geðveikt dugleg. Kom upp á töflu í stærðfræði, hehe. Því næst hélt ég heim og tók til í eldhúsinu, þaðan í vinnuna og svo kom ég heim núna hálf átta. Eins og við má búast þá er ég þreytt.Ég ætla að fara lúlla, mér finnst ég eiga það skilið.
Blogga seinna í hressara skapi.


1 Ummæli:
Júhú! Vúhú! Jíha!
YEAH!
Skrifa ummæli
<< Heim