föstudagur, september 30, 2005

Hektísk vika

Ritgerð, stærðfræðipróf, íslenskupróf (hljóðfræðipróf)og fyrirlestur í sögu.
Allt þetta var í vikunni sem leið á dagskrá hjá mér.
Skilaði ritgerð um Hjónabönd samkynhneigðra á þriðjudag, tók stærðfræðipróf á fimmtudeginum, og svo hélt ég heilan fyrirlestur og tók próf núna í dag.
Ég er frekar fegin að þetta sé búið, en þó er eitt próf eftir: hlaupapróf. Ég er sem sagt að fara núna í næsta tíma að hlaupa í kringum Tjörnina, tvo hringi, tekinn verður tíminn á mér og mér gefin einkunn eftir því. Ég hlakka ekki til þar sem að ég er viðurstyggilega kvefuð og með hósta og nefrennsli. Veit ekki hvort að ég verð þá undanþegin eða hvað... eða fái bara núll fyrir að hlaupa ekki.
Svo er ég óttalega hrædd um að sambandsleysi hrjái mig. Eða eitthvað. Ég er að fara í aðgerð á eftir. Er hálfsmeyk, ætla samt að reyna vera hugrökk.

3 Ummæli:

Þann 5:39 e.h. , Blogger Helgibelgi sagði...

Ég er á móti þessu "hektísk"
Það er ekki íslenska!!

 
Þann 11:10 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

ég í partíið þitt! :D of course my horse :D

 
Þann 7:26 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

uuu langaði bara að láta þig vita að stæ kennarinn þinn er sko ekki að gera sig( var að lesa gamalt blogg hjá þér) og ef þú ert ekki góð í stæ myndi ég læra oglæra og læra og mæta í aukatíma í stæ... margborgar sig.. það er MJÖG HÁ falltíðni hjá honum og það er ömurlegt að taka endurtökupróf
Spread the joy please

 

Skrifa ummæli

<< Heim