föstudagur, október 14, 2005

Landsbanki Íslands

Já, hæhæ! Ég er einmitt stödd út í banka að bíða eftir að þeir setji pappír í tækið sem gefur manni miða til að hægt sé að fá númer. Þeir eru að redda þessu núna.Reyndar er það hann Þórir minn sem er að bíða eftir þessu, ég er bara að fylgja honum að sækja kortið hans.
Og auk þess sé ég ekki rass í bala (svoleiðis rassar eru mjög sjaldgæfir), var með linsur í gær á Árshátíð Skólafélagsins sem var haldin í gær með pompi og prakt á Broadway og ég hélt fyrirpartý handa bekknum mínum og gestum þeirra, það komu aðeins fleiri en ég var að búast við og allir voru nú helst til of miklar subbur, helltu áfengi á gólfið í lítra vís. Foreldrar mínir voru heima og voru ekki sáttir með meðferðina á gólfinu, stelpur á pinnahælum að misþyrma því, við vorum samt dugleg að reka þær úr skónum.
Þetta partý heppnaðist samt bara nokkuð vel, enginn ældi í sófana eða á gólfinn eða bara neins staðar. Nokkuð gott. Ég var blá edrú eins og að vanda og þótti mér það ekki verra, en ókunnug stelpa sem kom þótti það miður. En hún var blekuð svo að hún var ekki alveg dómbær á það.
Ballið sjálft var frábært, dansaði mikið við hann Þóri minn og þegar hann var ekki til staðar dansaði ég við góðvin minn hann Árna kallinn. Við valhoppuðum út um alla neðri hæð Broadway. Fólki var nokk sama.
En, morgunpartýið var fínt, ég reddaði bakkelsi og brauði. Svo fór bekkurinn á skauta saman, það var líka ekkert smá gaman! Það er nefnilega komin eitt til tvö ár síðan að ég fór síðast og það tók smá stund að fá tilfinningu fyrir svellinu og skautunum. Á endanum var ég enduð á "listhlaupi" og hringsnúningum, sem voru nú samt ekki jafnflottir og hjá bekkjarsystur hans Þóris sem hefur verið að æfa þetta í 9 ár.
Mér fannst dagurinn í heild sinni vel heppnaður og alveg yndislegur.

Alveg totally 1337!

3 Ummæli:

Þann 4:45 e.h. , Blogger Einherjinn sagði...

Datt inná síðuna þína í gegnum blog sem var í gegnum blog sem var í gegnum blog hjá vini mínum, makalaust hvað nútíma tækni veitir engum neina persónulega friðhelgi.
En ég verð að segja takk fyrir teitið fyrir árshátíðina, ég get sagt stoltur að ég ruslaði ekkert til hjá þér, enda blá edrú (sem gerist ekki oft:P)

Einar Finns.

 
Þann 1:48 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Danke schön fyrir fyrirpartíið, það var yndi! :D
ég stakk þig alveg óvart af á ballinu... og ég held ég hafi stungið eiginlega alla af... hmmm..
skondið
mig laaaaangar að hitta þig, ég er ekki búin að sjá þig... í alveg... viku?

 
Þann 4:41 e.h. , Blogger Dóra Björt sagði...

Hæ. Manstu mig, ég man þig.

Blogg blogg.

 

Skrifa ummæli

<< Heim