Langt er liðið...
síðan að ég bloggaði hérna. Skólinn er sumsé byrjaður eins og landinn veit mæta vel. Börn, unglingar og fullorðnir hafa streymt inn í skóla landsins til að mennta sig.Í Lærða skólanum er nokkuð um nýnemendur eins og við mátti búast, en ekki jafnmargir og í fyrra þegar met var sett í aðsókn. Ég uni mér ágætlega í 4. bekk. Í bekknum mínum eru 5 nemendur sem voru í 4. bekk í fyrra, 2 nýir nemendur sem koma úr öðrum skólum, piltur sem er fæddur '86 og svo sambland af nokkrum gömlum 3. bekkingum. Svona er það að hafa valið náttúrufræði 2. Mér finnst þessir bekkjarfélagar fínir. Og langflestir kennararnir mínir eru skemmtilegir, fyrir utan tvo. Stærðfræðikennarann og líffræðikennarann. Stærðfræðikennarinn er mjög sérstakur, sköllóttur með smá hvítt hár og hvítt alskegg. Greyið er reyndar ekkill með tvær dætur. Svo er það eitt sem mér er dulin ráðgáta og það er tilhneiging hans til að sleppa bókstafnum R, hér og þar. Og ég get sagt ykkur eitt að það er ekkert sérlega hentugt því hann skrifar alveg fáránlega illa karltuskan. Þessi gaur er umsjónakennarinn minn. Ekki gott! Eins og einhverjir vita þá er stærðfræði langt í frá að vera mín sterkasta hlið, svo að ég var að vonast eftir að fá góðan stærðfræðikennara sem gæti hjálpað mér í vetur að byggja um gott sjálfstraust í þessu fagi, eftir að Siffa, kennarinn minn frá því í fyrra, ágætis kennari en hræðilega ströng, fékk mig ekki til þess þá var ég að vonast eftir kennara sem stæði ekki í því að hræða mann og ekki eftir kennara sem skrifar illa og er með snauðar útskýringar! Mér detta nokkur ráð í hug:
1. Skipta um bekk
2. Fá einhvern sem er góður í stærðfræði og nokkuð þolinmóður að hjálpa mér
3. Sækja um að fá stærðfræðikennarann leystan frá störfum sökum hás aldurs
4. Fara á málabraut
-Kannski eitthvað af þessu virki, ég á eftir að hugsa þetta aðeins
Já, litla leiðinleg líffræðikerlingin, hún er nýbyrjuð að kenna og kann það nú ekki vel. Hún er hámenntuð í þessu en ég fæ bara ekki góða strauma frá henni. Augun í henni eru svo langt frá hvert öðru og hún er hálf tileygð og horfir illilega á mann. Röddin er hás og frekar pirrandi. Og ég sem var búin að hlakka til að byrja í líffræði!
Ég er komin með vinnu í Konditori Copenhagen og fór ég í gær í fyrsta sinn til vinnu. Það komu þrír viðskiptavinir sem ég þekkti, fyndið að fá Jóhannes formann sd. KR og Sigrúnu + vinkonu hennar á fyrsta deginum.
Verður gaman að fá aukatekjur í vetur.
Það er víst stærðfræðipróf á morgun í fyrsta tíma svo að ég held ég fari og kíkja á stærðfræðina.
Sæl að sinni!


7 Ummæli:
Jújú, ég er heldur ekki sátt við stærðfræðikennarann minn....
-Hún heldur að það trufli einbeitinguna í bekknum ef einn einstaklingur hlustar á ipod
- hún er bjáni...
-Hún veit ekki hvað ipod er´
-Hún kann ekki að útskýra stærðfræði
-Hún er plain léleg manneskja...
svei...
annars segi ég allt gott! :D
Franz Ferdinand í kvöld og ég hlakka svooooona mikið til :D
Ímyndaðu þér Auðun að dansa. Það er fyndið.
Go issuetrack! málabraut er málið!
Veistu hvað mér finnst gaman? að klikka á next efst í hægra horninu og skoða blogg frá öllum heimshornum....
simple minds, simple pleasures...
haha :D
sammála... næstsíðasta ræðumanni
svo sammála reyndar, að ég stenslaði mér latínubol í gærkvöldi
latína4evahh!
HILDUR! ef þú sérð þetta þá vantar mig svakalega að tala við þig! :O
-Dóra!
Jamm, ég ætla að ráðleggja gegn þessu með að fá kennarann leistan frá störfum þar sem hann er ekkill og þarf á peningum að halda. Aðal málið er bara að vera þolinmóð sjálf, en þú ræður svo sem hvað þú gerir.
Skrifa ummæli
<< Heim