laugardagur, október 22, 2005

Ma-mo-Ma-mo-Ma-mo-Ma--mo-María!!!

Já, í gær. Þá var föstudagur. Byrjaði daginn með trompi! Hraðlas 40 blaðsíður í dönsku kjörbókinni, De Uanstændige, fór svo í skólann og tók próf, massaði það alveg. Svo fékk ég út úr stærðfræðiprófi sem ég náði með bara fínni einkunn.
Og nokkru síðar þá var leikfimitími og ég var voðalega dugleg. Tók magaæfingar, armbeygjur og sippaði 300 sinnum.
Eftir skóla fór ég til Dóru minnar, við bökuðum lakkrís-skúkkulaði-toppa (jólin nálgast óðfluga þegar maður bítur í eina svoleiðis).
Þegar við vorum búnar að baka og hlusta á Immy (I-podinn hennar). Apparat, Blonde Redhead og fleiri góðvinir Innipúkans spiluðu fyrir oss. En já, þá var stefnan tekinn á 12 Tóna, en þar voru Trabant og Architecture in Helsinki að fara spila, og það var nú líka ekkert smá gaman! Rassi Prump var að slá í geng eins og vanalega, hann er svona manneskja sem að fær mig til að langa að hlaupa og knúsa hann, bara fyrir að vera þarna. Svo voru hinir hljómsveitameðlimirnir ekki í verri kantinum, Gísli Galdur alveg að brillera.
Svo þegar þeir voru búnir að spila, tók við einhver krúttlegasta hljómsveit sem ég hef heyrt í um dagana. Architecture in Helsinki, Big band frá Ástralíu!
Alveg brilliant, endalaust úrval að hljóðfærum.
En ég segi ykur seinna meira, farin!

4 Ummæli:

Þann 3:32 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég er ekki alveg viss en ég held að maður segir ótrúlegt úrval AF hljóðfærum. En ég er samt ekkert góður í íslensku.

Þú mátt alveg kenna mér að baka svoa kökur og baka fleiri fyrir mig :D Namminamminamm

 
Þann 1:46 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Hér með leysist sá ágreiningur um hvort maðr segi AF eða eitthvað annað... maður segir AF
hananú :D
En artchitecture in helsinki voru brilliant og awesome "Do the whirlwind!"
mig laaaaaaaangar í diskinn.... :D

 
Þann 9:11 e.h. , Blogger Storeide sagði...

pant sakna þín geðveikt.
ókei takk bæ.

 
Þann 6:46 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Hey þú óvirki ofurbloggari! viltu hundskast að lýsa deginum þínum á netinu svo ég hafi eitthvað að gera á daginn!
Einfrumungur!
:D

 

Skrifa ummæli

<< Heim