Ég var að uppgötva eitt!
Ég hef víst verið KLUKKUÐ, af Þóri. Ég hélt að ég myndi sleppa en nei, það gerði ég ekki.Ég skal þá segja 5 staðreyndir sem kannski enginn veit:
1) Þegar ég var lítil, var ég, þótt kannski undarlegt megi virðast, alltaf látin í það hlutverk að leika karlmanninn í leikjum hjá okkur stúlkunum. T.d. þá lék ég alltaf barbie-karlana, var undantekningalaust "Tarzan" í "Tarzan og Jane" leiknum, alltaf karlinn þegar einhver giftist o.s.frv. Veiga mikið hlutverk vitaskuld, ég var nú ekkert karlmannleg ung stúlka, kannski bara góð leikkona, eða hvað?
2)Ég hef æft nokkrar íþróttir um ævina; Ballett, samkvæmisdans, handbolta og sund.
Í ballet var ég mjög óvirkur nemandi enda rúmlega 4 ára stelpuskott sem fannst grútleiðinlegt að dansa "Sólardansinn" og vildi heldur sitja hjá og teikna danstímann í heild sinni. Kennararnir voru svo samviskusamir að benda móður minni á það að ég ætti heldur að fara í myndlist. Send þangað, vitaskuld.
Ég æfði samkvæmisdans í rúmt ár, keppti ekki oft en hafði gaman af þrátt fyrir það. Hætti samt eftir að ég fékk nóg af ráðríkum kennara.
Í handbolta var fínt, fékk mest að vera á línunni að trukkast og stympast á, skoraði oftast þegar ég fékk boltann, svo ég var ekki alslæm, hætti þó eftir að "hátindi" ferilsins var náð, 3 sæti í B. riðli íslandsmeistaramóts eitthavað:. Hehehe.
En eftir að hafa áttað mig á því að ekkert af þessu átti virkilega við mig fór ég að æfa sund, sem ég æfði í 6 ár, setti meðalannars Íslandsmet í boðsundi, þangað til að ég varð svo oft lasin að ég gafst upp á að byrja sífellt að nýju. Fór að einbeita mér að náminu.
3)Ég veit ekki alveg hvað ég vil verða þegar ég er orðin fullorðin. Bara hef ekki hugmynd. Því að hver veit hvort að ég nái fullorðinsaldri og geti hafið eitthvað nám eða hafið einhvern feril.
4)Ég get ekki drukkið áfengi lengur. Í seinni tíð eftir að ég fór að smakka áfengi, þá hafnar líkami minn öllu áfengi og sjálfsagt kannski hugur minn líka. Ég held að það sé ágætt í sjálfu sér, því að ég get skemmt mér án áfengis. Staðreynd!
5) Áður en ég byrjaði í menntaskóla hafði ég aldrei kynnst erfiðu námi. Því að grunnskólinn er skítléttur og ég lærði þá lexíu eftir minn fyrsta vetur í MR að það þarf að læra til að skilja og geta.
Vona að þið lesendur góðir hafið verið að lesa eitthvað nýtt, annars tek ég fegin á móti athugasemdum og/eða gagnrýni.


3 Ummæli:
hahahahahaha! Einhvern tímann spurði ég balletkennarann hvort hún myndi eftir þér... hún hugsaði sig aðeins um og sagði svo: "já, Hildur, ég man eftir henni... hún sat alltaf í sófanum og litaði og talaði við páfagaukinn!"
ahaha :D til lukku með bloggið, mig langar að hitta þig, einfrumungurinn þinn! :D
Ég æfði nú einu sinni Fótbolta. Djöfull var það leiðinlegasta sem ég hef gert! hætti eftir eitt ár.
Ég get ekki ímyndað mér þig í handbolta, en talandi við páfagauka...JÁ!
Heyrðu nú mig! hvernig stendur á því að ég þarf að alltaf að neyða eitt stykki blogg frá þér? hm? hm? hm? hvers á maður að gjalda? ég er að verða galin hérna :D eða er orðin, fer eftir því hvernig þú lítur á þetta....
Skrifa ummæli
<< Heim