laugardagur, ágúst 13, 2005

Dagur númer þrjú

Já, þeir sem hafa farið í hálskirtlatöku kannast líklega mjög vel við líðan mína núna.
Ég má ekki taka inn íbúfen til að lina þjáningar mínar! Svo að ég er bólgin í hálsi og með verk sem leiðir út í eyrun mín. Býst við því að það sprautist blóð út úr einhverju eyranu þá og þegar. Æ, ég veit ekki. Það væri samt nokkuð kúl að sjá bununa standa út úr öðru eyranu mínu. Burt séð frá því þá er það alveg frábært að vera laus við kirtlana. Núna get ég hætt að vera sí lasin. Eða það vona ég. Ég er að pæla að hætta að kyngja og hrækja bara þess í stað, það er mun sársaukaminna.
Ég vil þakka vinum og vandamönnum að hafa lagt leið sína hingað til mín á þessum tímum. Hehehe. Ég met það mikils. En já, ég verð að öllum líkindum í 4. bekk R þetta árið.
Yay or nay? Ég veit ekki enn. Ef einhver vill vera æði þá má sá og hinn sami koma með barnamat í krukku til mín. Hann rennur svo mjúklega niður.

1 Ummæli:

Þann 7:37 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

barnamt? hahaha!:D ég kannast við þetta.. eins mikill ís og maður vill en það er samt svo erfitt að borða hann!:S:P:P en þegar þú hættir að vera veik byrjaru aftur að æfa er það ekki??
en láttu þér batna :)

 

Skrifa ummæli

<< Heim