Já, neeei.
Halló, ég trúi ekki að það hafi liðið þrír dagar án þess að ég bloggaði... Þvílík undur og stórmerki. Dagarnir líða hérna hraðar en nokkurn tímann.Í gær var söguprófið. Það gekk vel, spái mér ágætiseinkunn.
Fór á bikiníveiðar í gær með móður minni í stærsta reðurtákni landsins. Ég er nokkuð viss um að arkitekt Smáralindarinn sitji og hlæji sig máttlausan í svefn hvert einasta kvöld: ,,Ég trúi ekki að fíflin hafi byggt þetta, AHHAHAHHAHAHAH, ég trúi því ekki.... Nákvæmt líkan af kallinum mínum! HAHAHAHHAHHAHA....!"
Labbandi eftir sáðrás leitandi að bíkiníi. Æj, þetta er svo súrt eitthvað. Þrátt fyrir að hafa leitað og mátað í Útilíf, Debenhams, Top Shop og hlaupið hrædd út úr Zöru vegna smæðar tíglanna á bikiníjunum, þá fórum við heim með Pizza Hut flatböku til að næra soltinn lýðinn heimafyrir.
En ung dama í Isis, benti mér á að fara í H&M við Kringluna. Ohhh, ég fæ verslunarþrá aðeins að hugsa um H&M í Danmörku, Spáni eða hvaða útlandi sem er... Hérlendis er þessi búð til skammar. Öreindaleg smæð þessarar búðar er dapurleg. Þetta fyrirtæki myndi blómstra hérna ef þau stækkuðu við sig og létu meiri fatnað í búðina. En afturámóti þá færi fólk ekki jafnmikið í verslunarferðir til útlanda fyrir vikið... Það verður bara að velja og hafna.
Ég fór samt sem áður í H&M í dag, réttara sagt í morgun. Ég lýg því ekki en ég fann helling af fallegum bíkiníum! Þau fóru mér öll vel og ég átti í mesta basli að velja mér eitt af þeim. Með hjálp útilokunaraðferðarinnar og nýjustu tísku þá náði ég að minnka valið niður í tvö bikiní. Og ég valdi mitt fallega bikiní, ég var sko ekki óánægð með valið, því að þetta er með þeim fallegustu sundfötum sem ég hef keypt mér og er ég nú sundkona. Ég held ég kaupi mér samt eitt í viðbót þegar ég fæ útborgað í sumar. Sé til...
Jarðfræðin kallar á mig og ég þarf að halda áfram lærdóminum.
Góða helgi ;o)


1 Ummæli:
Til hamingju með hversdagssigurinn... þeir eru yndislegir :)
annars heiti ég Klara ;)
Skrifa ummæli
<< Heim