GÖRK!!
Já hæ hó og jibbíjeij. Ég er hundömurlegur bloggari. Ég hef einhvern veginn misst allan bloggvilja. Hef enga löngun til þess lengur. Er ég veik? Ég álykta bara það að ég hlýt að hafa meira og annað við tímann að gera en að sitja fyrir framan tölvuna og blogga... En samt, ef ég hugsa út í það þá sit ég löngum stundum á þjóhnöppunum og er á MSN, þeim andskota...!!! Nú er tími fyrir róttækarbreytingar! JÓLIN ERU TÍMINN!!!Eftirfarandi mun vera framkvæmt um leið og prófin klárast:
1. stunda reglulega líkamsrækt
2. hitta vini mína reglulega
3. hafa allt hreint í kringum mig
4. vera enn betri við náungann
5. blogga við og við og leyfa ykkur (ef það er þá einhver þarna úti að fylgjast með blogginu) að fylgjast með hvernig breytingarnar ganga fyrir sig!
meira síðar...


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim