laugardagur, mars 19, 2005

Seint blogga sumir en blogga þó

Halló. Ehemmm.... Ég skal reyna að koma með stutt ágrip af því sem ég hef gert síðustu mánuðina síðan ég bloggaði. Jæja, árið leið í aldanna skaut og aldrei það kemur tilbaka, nema í draumi kannski... Heljarinnar bombartering og læti læti, kæti...
Ég er núna í ritnefnd. Ritnefnd Menntaskólatíðinda ásamt félögum mínum Helga Þóri, Þóri, Sunnu og Arnari. Höfum við alls gefið út 1 tlb. og stenfum á að koma hinu í prent eftir páskana, eða eitthvað í þá veruna. Gaman gaman gaman og fékk frumburður okkar ágætis viðtökur frá samnemendum. Mér leið eins og stoltri ungamömmu að kjaga með þá niður að tjörn í fyrstu sundferðina og sundferðin heppnaðist vel!
Já, ég fékk einkunnir út úr prófunum sem ég tók og gekk það almennt vel nema með eitt fag... jájá nóg um það!
Nú er páskafrí og marsmánuður. Mér líður bara ágætlega. Í gærkveldi var ég að labba í hægindum mínum heim frá Helga og þá keyrði bíll fullur af strákum upp að mér og keyrðu með fram mér og kölluðu: "Hey! Vantar þig miða á Iron Maiden tónleikana??" Ég svaraði eins vel og ég kann og sagði: "Nei." Þeirra svar var þá: "Ekki, jú er það ekki?" Ég stóð föst á mínu og sagði: "Nei takk." Þá sagði einn af þeim: "Skottið okkar er fullt af kannabisefni!" Það hlýtur að hafa verið bláköld lygi svo ég svaraði með því að horfa á þá og kinka kolli með hæðnisglotti. Þá hlýtur að hafa sést í Seagrams flöskuna mína grænu og þá kallaði þessi frammi í: "Ertu að drekka bjór???!" Ég neitaði því. Þá kallaði einhver aftur í hálfsmeykur: "Hún er með GLERAUGU!" Þá sneri ég mér að þeim, stoppaði og setti höndina lauslega fyrir munninn og sagði: "Ó, en HRÆÐILEGT!" Eftir þetta svar ákvað drengurinn frammi í að spurja um símanúmerið mitt. Ég sagði bara: "Já, NEI." Þá hrópaði e-r aftur í: "Er það 8667843?" Mér var bara hálfskemmt hvað þeir ætluðu ekki að gefast upp og sagði: "Jú, það er í nærra lagi..." -"Æj,plís segðu okkur númerið." Ég tók þá seinasta spilið mitt og sagði: "Strákar mínir, ég er á föstu..." Þá var þeim öllum lokið og þeir hrópuðu: "DJÖFULSINS!" og brunuðu í burtu.
Svona fær mig til að hugsa. Virða þeir það að ég sé á föstu og hættu þess vegna við að nauðga mér allir saman í hóp eða?
Skiptir engu, þetta var samt svolítið gaman.
Ég vona að krökkunum gangi vel að synda á ÍM-50. Það er Íslandsmeistaramót og ég er ekki að taka þátt. Það hryggir mig dálítið.
En samt, ef að ég tæki þátt núna þá væri ég ekki að ná neinum glæstum árangri! Svo að ég er hálf fegin.

Njótið páskanna og farið fínt í súkkulaðiátið.

1 Ummæli:

Þann 12:52 f.h. , Blogger Storeide sagði...

ÞAÐ VAR MIKIÐ! Halda svo áfram, þú getur þetta, GÆS, GÆS, GÆS! (Ahemm.) Annars, ekkert vera leið Hildur mín, ég myndi sko nauðga þér á nó tæm, ekki spurning.

 

Skrifa ummæli

<< Heim