fimmtudagur, nóvember 04, 2004

Sælt veri fólkið!

En einu sinni hef ég breytt um útlit. Veit ekki hvort þetta verði til frambúðar. Hitt lúkkið var orðið frekar gamalt, mjööög! En það template-ið var allt í einu hassi og graut og ég nennti nú ekkert að reyna flikka upp á það. Sei sei nei.
Jáá, ég er oft í prófum, MR vill meta frammistöðu mína mjög oft og reglulega, þ.e.a.s. kennaraskríllinn. Æj, þau eru svosum ágæt, Sigfríður kennari á það þó til að vera svolítið mikil tussa. Hún er samt best við minn bekk, enda rómaður fyrir góða hegðun og gáfur, enda erum við G bekkur. Haha, vá ég var að átta mig á þessu núna. Kannski verðum við eftir jól N bekkur. Nei, nei.. Hvaða vitleysa.
Og meira af skólanum, fyrir þá sem ekki vissu þá er jólaprófstaflan komin upp. Og félagsfræðahélvítisóþarfadraslpróf er haft á LAUGARDEGI! AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAARGH! Ég er nú einu sinni á náttúrufræðibraut til að sleppa við þann sora, en samt er þetta skyldutími einu sinni í viku. Félagsfræði er fyrir vörtur, nei djók:P En ég digga'ana ekki, alveg eins og Nylon, þær sjúga.
En jámm, ég er ekki sátt með það. Ég er að stefna á að ná öllum prófunum og er því búin að redda mér hjálp með stærðfræðina sem er eina fagið er ég er ekki að standa mig í. Ég vil svoooo verða betri í stærðfræði að ég mun næstum fórna hverju sem er til að ná því takmarki, be one of the best(as in a person who doesn't fall, that is acceptible to me)!
Ég fer í 2 próf á mánudag.... Dönsku kjörbókarpróf og sögupróf úr goðafræðinni. Ég spái betri úrkomu úr goðafræðinni heldur en úr hinu prófinu sem ég tók síðast, það gekk ekkert alltof vel. EINUNGIS ritgerðarspurningar og skilgreiningar, en reyndar var líka það að merkja við kennileiti, isss, hviss...
Það er komið svolítið síðan að ég bloggaði, það er vegna tímaskorts, án gríns, ég er önnum kafin. Byrjaði sko að synda aftur í október, og er núna búin að næla mér í þessa æðislegu hálsbólgu, einmitt þegar ég var nýbúin að batna og röddin mín er næstum farin, hún dettur inn með hléum. Ansans ég. Asnans ég. Ég keppi sem sagt 100% ekki á BIKAR. Týpískt.... Mamma stakk upp á við mig að ég myndi hætta að æfa sund og leggja eitthvað annað fyrir mig, það hljómar ekkert óvitlaust, miðað við það að ég fari á æfingu í tæpar tvær vikur í senn og sé komin með einhverja veiki eða pest eftir þann tíma. Það getur ekki talist eðlilegt... Eða hvað? MJÖG ÓLÍKLEGT.
Verð bara að harka þetta af mér, eins og allar hinar pestirnar sem ég hef fengið... Ég er ekki dauð enn svo að það er eitthvað jákvætt í gangi. Nú er ég hætt að tala um þetta, þetta vill enginn lesa um. ENGINN.
Ég er komin í rosalegt bloggstuð. Kannski það sé vegna þess að ég nenni ekki að labba fam í stofu og læra. Það mun þó gerast á endanum, já, í endann. Ætla samt fyrst að setja commentkerfi á síðuna að nýjum leik.
Þar til síðar... Hafið það gott og verið dugleg, en ekki of dugleg, verðið að muna að hvíla ykkur inn á milli. :)

1 Ummæli:

Þann 12:56 e.h. , Blogger Gibba Gibb sagði...

YAYYYY!! TAKK PYKILL MINN!! :):):* já og til hamingju! Ég hélt að enginn myndi vilja commenta nokkurn tíma aftur. diddirídiddí dammdiddidamm... Furby!

 

Skrifa ummæli

<< Heim