Engrish.com - Snilldar síða... :o )
Sko mig, sko mig, ég sit og skrifa. Ég át mikið Maltisers í dag. Ég held að það sé ekki hollt... Geri það þá ekki í bráðina allavegana. Nokkrar hetjulegar tilraunir hafa verið gerðar í dag til að lesa "Fornir tímar" eftir Gunnar nokkurn Karl, allt með misgóðum árangri. Ég sofna yfirleitt áður en ég kemst á skrið, sem er ekki gott. Ætla þó að pína mig á morgun og lesa alla bókina.Enskan gekk ágætlega í dag held ég. Gat nánast allt alveg, en ég gat ekki munað hvað frumstæður var... svo að ég sagði PRIMAL! Ohhh, ég er blábjáni. Lítið hægt að gera í því....
Ég bið **beep** að segja já... JÁ! En nei....
Ég auglýsi eftir gæludýri*, áhugasamir hafi samband við mig.
Ég er á leið í bíó í kveld á The Hitch-hikers guide to the Galaxy.
That ought to be fun!
*Gæludýr, er það sem Elísabet kallar mjög náin vin**.
**æj, þið fattið...


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim