miðvikudagur, október 13, 2004

Good evening dear sir!

Evenin'....

Jæja já. Bara enn einn miðvikudagurinn liðinn. Skil þetta nú varla. Lifi ég svona hratt? Ótrúlegt. Og ömmu finnst dagarnir líða hægt...
Híhíhí. Í leikfimi í dag var gaman. Við fengum að læra dansa. Cha-cha-cha, Rúmbu og eitthvað hæll-tá-hæll-tá hliðarsamanhliðarsamanhliðarsaman... klapp klapp klapp o.s.frv. ;P Einkar gaman. Í rúmbunni dansaði ég við e-n strák sem var að kenna dansana. Hann er víst í samkvæmisdönsum. Sá það alveg á stöðunni hans. Beinn í baki, olbogar láréttir. Og í lok tímans var stopp dans, þar sem fólkið átti að skella sér á rassinn í hvert sinn sem að tónlistinn stoppaði. Ég, að sjálfsögðu, lenti í úrslitum á móti Aroni í hinum bekknum. Hann hafði víst betur... 2. sæti er ágætt. Hehe;) bara að rennilásinn á buxunum mínum væri í lagi... Það er einmitt þannig að buxurnar mínar hafa enga smellu né hnapp svo rennilásinn á það til að rennast alveg niður, mér ti mikilar gremju og öðrum til hneykslan! En hvað um það. Buxur og engar buxur...

En....
Ég skellti mér í klippingu óvænt í dag út á Sögu. Fékk vænan hárþvott+ hársvarðar nudd... hehe! Svo er ég komin með frekar stutt hár miðað við vanalega. Og þyngri klippingu. Gellan sagði að það væri í tísku. Yeah yah. Og ég er kaffibolli.

Shit hvað kötturinn minn er fallegur!

Ég bjó til folk.is blogg í gærkvöldi. Bara uppá funnið. :P Ætla ekki að segja neinum slóðina. Þið getið aaaaaldrei giskað á slóðina! HAHA!

ÁRSHÁTÍÐIN ER Á MORGUN! VÁ HVAÐ ÞAÐ VERÐUR MIKIÐ STUÐ! AAAAA!

Feitt djamm, ammælisdjamm, í Súlna sal Hótel Sögu. Bara gaman býst ég við.

Úff... líka 2 próf á morgun, enskar sagnir og stærðfræðipróf. Allah malla... Ég er búin að læra í mest allan dag fyrir stærðfræðina þannig að það ætti að skila einhverjum árangri! Ætla að kíkja á enskar sagnir og fara beint að sofa.

Fór áðan til Þóris og viti menn... drengurinn er búinn að klippa sig stutt!!!! Við hjónin fórum bara í klippingu á sama degi. Við alltaf jafn samstíga!

Enívei!
Thanks for a lovely evening and I hope you don't have to strive much to get through this post.

Good night.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim