You are always on my mind.
Það líður ekki sá dagurinn að ég fæ nagandi samviskubit yfir bloggleti. Samt, það er ekki eins og þið lesið ruglið í mér... er það nokkuð? Ég bara veit ekki hvað ég ætti að segja ykkur. Hvað viljiði vita? Varla um hvernig ég eyði deginum, eða hvað ég ætla að gera, eða hvað mig langar að gera....? DO YOU!?Jamm, þessi vika leið hraðar heldur en sú seinasta. Getur einhver sett heiminn á hold og leyft öllum að anda rólega í smástund. Það væri vel þegið.
Ég hef það annars bara mjög gott þessa dagana. Ég á frábæra vini, góða fjölskyldu og hef það alveg þokkalegt. Fyrir utan mitt kvef.... annars er hálsbólgan FARIN! YEEEHAW! Þið vitið hvað það er leiðinlegt að vera veikur marh, úff!
Jæja, ég lofa að blogga alla næstu viku ef þið lofið að commenta eitthvað! Bara að segja hæ er nóg sko!
Bolludagur á morgun, og ég ætla að þjófstarta, fá mér bollu núna! Jammsjamms :)


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim