hæhóhæhó
Afsakið ég komst ekki í það að blogga meira í gær.Ég fékk boð á Ástarballið á fimmtudaginn nk. og var það herramaðurinn Tumi sem bauð mér og auðvitað þáði ég boðið!
Þessi drengur er geðveikt skemmtilegur og líka vinur minn. Frábær ballfélagi don´t you think? :)
Jæja jæja, sundæfingin í gær var hræðileg! Veðrið var svo slæmt að ég þakka mínu sæla að ég drukknaði ekki í ölduganginum í Neslauginni...
Og jáááá það var bara ágætt í skólanum í dag. Ég lærði alveg rosalega mikið (reyndar gerði alla heimavinnuna, tíhí) í skólanum. Og ég setti át met. Tróð í mig kringlu og eplasvala á met tíma! Allt Dagmar að þakka og mínu súper hökkunarvéla tönnum (eða þannig...) hehe.
Hvað sem því líður þá var æfingin í dag ekkert svaka erfið! Flora var búin að vara okkur við í gær við alveg rosa erfiðri æfingu og svo var hún ekkert svona rosa erfið. Erfiðast var að synda 8*50 flug á fullu! Ég á þriðju æfingunni minni síðan ég var veik og var Flora alltaf að skipa mér að fara undir 40! Ég gat ekki annað en haldið bara 45... ég hefði örugglega ælt blóði ef ég hefði haldið hinu! Kannski smá ýkjur en mér hefði ekki liðið vel!
Ég er að pæla í að fara snemma í háttinn í kvöld. Það er of seint að fara að sofa að ganga 1 á virkum degi. Það er bara ekki rétt.
Sjáumst, blessssss ;)


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim