Blizzuð píps!
Júddílídúddílídei. Alveg rosalega er gaman að vera til. Mjahhá! Vitiði hvað ég gerði í gær? Öhh fæst ykkar vita það en allavegana ég fór í áheyrendapróf fyrir "Hárið". Mwahahaha, ég söng fyrstu laglínu "Snert hörpu mína himinborna dís" og svo kunni ég ekki meir og hvað þá heldur Sigga Birna! Við hlógum bara að því... Svo tók ég smá lagstúf úr Maístjörnunni.... ég er reyndar búin að vera með barkabólgu.... og ég hef alltaf efast um sönghæfileika mína þótt þeir sem standa mér næst segi að ég syngi ekkert illa. Og ég held að þeir séu bara að ljúga en hvað veit ég, þegar ég hlusta á röddina mína á spólu eða bandi þá bara jeez! "Hvaða skræka ógissla manneskja er að tala?" það ert þú er mér þá bent á! Fukkin aint!! :) Ég held að flestir séu sammála að þeim finnist röddin sín vera skrýtin þegar hún heyrist annars staðar frá heldur en eins og við heyrum hana dags daglega.Ég á svo fallegan kisa! Sjá þetta krúúútt! Þessa fegurð, þessi huges AUGU! mmmmmm, bræðir hjarta hvers manns á innan við 10 sekúndur.... Burt séð frá honum þá var gærdagurinn bara ágætur! Ég fór á SUNDÆFINGU! Jibbí Skibbí! Og ég flaug svoleiðis áfram að ég veit ekki hvað. Þetta er alltaf svona með mig, ég tek mér frí og kem tvíelfd til baka. Eða þúst ekki alveg tvíelfd en ekki verri skal ég segja þér. Gerðist fyrir mig líka í sumar! Fór 2 vikum fyrir ÁMÍ til DK og S og komst 4 sinnum í sundlaug... keppti svo á AMÍ og gekk bara mjög vel :) Smá pása gerir mér bara gott.
Úúújeh engin æfing í dag. Það verður bara farið í keilu og út að borða á eftir :o) skemmtilegt það, vona ég....
Ég rakst á síðu hjá Filipseyskri stelpu og sá þá þessa frasa:
"Work like you don't need the money; Love like you've never been hurt and Dance like you do when nobody's watching!!"
Arthur Ward said:
"When we seek to discover the best in others, we somehow bring out the best in ourselves."
Audrey Hepburn's 'beauty tip':
"For attractive lips, speak words of kindness. For lovely eyes, seek out the good in people. For a slim figure, share your food with the hungry. For beautiful hair, let a child run his/her fingers through it once a day. For poise, walk with the knowledge that you never walk alone."
Svei mér þá ef það er ekki eitthvað vit í þessu.... Fegurðin kemur að innan myndi ég segja. Sumir hafa eru mjög fagrir að utan en ekki að innan sem dregur fegurðina að utan niður því ef fólk er leiðinlegt og fagurt þá verður það ljótara og öfugt! Það finnst mér.... :)


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim