Úlalalalala... æ lov jú beibeh, úlalalalala löv mí túnæt!
Komiði margblessuð og sæl.Ég bloggaði ekkert í gær því mér leið ógeðslega illa. En mér líður miklu betur því frábærasta manneskja sem gengur þessa jörð kom mér til bjargar. Keypti fyrir mig meira að segja bragðaref úr bestu ísbúð landsins! Ekki amalegt það! :)
Já, á miðvikudaginn... hey, já, það var í gær! Allavegana, þá fór ég í húðhreinsun! ÁÁÁÁÁáááááááááááiiiii. Þeir sem hafa farið þekkja þetta. Snyrtifræðingurinn er geggt næs og þrífur húðina með ýmsum kremum og kornmöskum, svo er marh settur undir hitaperu til að opna húðina í svona korter 20 mínutur. Því næst er tekið til við að kreista manns fagra andlit sundur og saman og það er sko ekki gott! Ég hélt augunum mínum lokuðum og kreppti bara hnefana. Kveinkaði mér mjög lítið, fyrir utan þegar konan reyndi að halda uppi samræðum þá sagði ég oftast: "Ehh já ÁÁÁ.. í ÁÁ hjá skólÁÁÁÁanum..." hver er tilganurinn með að reyna tala við mann þegar hún er að pynta mig? Hún sagði meira að segja eitt skiptið: "Var þetta á eða já?:P" og hló... ég bara hehe áááiiii..... Þegar hún var búin að kreista mig þá reyndi ég að opna augun en sá ekkert því augun fylltust af tárum! Bara "shit er eg búin að missa sjónina mína!" nei nei hún kom eftir að ég þerraði andlitið mitt...
Svo settu hún á mig hvítan maska sem harnaði mjög og ég gat ekki talað. Þá þurfti mamma að koma inn og reyna halda uppi samræðum. Getiði ekki bara talað við mig þegar ég er fær um það? ;=)
Jeppsídós, ég þarf að fara aftur þangað eftir 2 vikur.... YAY! Fönn fönn!:P en í dag sést varla á mér að ég hafi farið í misþyrmingar! :o)
Újehh! Ég má fara á sundæfingu á morgun! Vííííí! :) Loksins! Ég sakna þess svo að synda og ég sakna krakkana! Eika og Pésa sérstaklega þar sem ég hef ekkert hitt þá í næstum viku eða e-ð!
Og já, eftir viku er Valentínusardagur og á Valentínusardag verður haldið Ástarball í Hagaskóla. Ætli ég fái boð um að fara á ballið? Það yrði ósköp indælt. Ef ekki þá skelli ég mér bara með Berglindi... Líklegast ekki sem par en það væri fyndið :P
Sjáumst er farin að ryksuga! Vacum Cleaner moohaha!


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim