mánudagur, febrúar 09, 2004

Hæhó hæhó við höfum ei fengið nóg!

Vááázzzaaaa!! Laugardagurinn var í meira lagi í betri kantinum . :) Mér gekk ekkert alltof vel í keilu.. hem hem, kastaði alltof fast alltaf! Fékk reyndar 54 stig! Og Begga líka og Kjarri! Múhahaha! Fórum upp í Hússtjórnunarskólann á Sólvallagötu eftir á og fengum yndislegan Tælenskan mat. Sólin skein í heiði og var að steikja okkur á meðan.... Þótt að það hafi verið skítakuldi úti!
Rosalega er ég í litlu bloggstuði! Alveg ömurlegt! : (
Um kvöldið komu Kjarri, Eiki, Árni og Begga til mín og spiluðum "Kjaftæði" eða "Lygi" og grút tapaði ég.... eða ég tróð öllum spilunum inn á mig í lokin en enginn tók eftir því fyrr en ég sýndi þau hehe... jájá það var gaman. Því næst fórum við í skítakall með 3 spilastokkum og var það heldur daufara.
Mmmmjá ég skil núna hvers vegna strákarnir gátu verið allir svona þreyttir. Því ef einn aðili af þeim er slappur og nennir engu þá hefur það áhrif á alla! Ekki gott mál.
Ég kveð núna. Blogga meira á eftir. Er farin á æf.. bæbæ

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim