þriðjudagur, febrúar 17, 2004

With the taste of the poison paradise..I'm addicted to you.. Don't you know that your toxic?

Hjálpið mér! ARG, þetta lag er búið að þröngva sér inn í heilann minn og ætlar ekkert að fara út neitt strax!
Ég sem hef aldrei þolað hana Britney Spears, af skiljanlegum ástæðum, það eru bara allir alltaf að syngja þetta Guðsvolaða lag!
Ég er að kafna í kvefi og hálsbólgu þessa dagana. Alltaf hraust og hress! Ég get ekki munað eftir degi í haust þar sem ég var ekki annaðhvort með kvef, lungnabólgu, barkabólgu, hálsbólgu, bronkítis eða bara hósta... Pælið í því!? Geðveikt óheppin ef þið spurjið mig. Jámm, Bryndís kýldi mig á laugardaginn og er ég með aumt og bólgið nef henni að þakka. Piff, alltaf jafn góð lítil systir. Hemhem...
Var í Actionary í gær og vann liðið mitt með gott forskot á flesta! Við Dóra, Þóra og Ásgerður vorum saman. Í leiknum þá var alltof oft lent á ALLIR SPILA! Við vorum að verða geðveik á því. En stóðum uppi sem sigurvegarar og er þá óhætt að segja að við séum hörkuleikarar. Ég er mjög góð að leika rostung. Don´t ask me why!
Var að borða kókosbollu og namm namm það er gott. Hehehe! Annars þá hef ég lítið annað að segja heldur en ég er farin til Berglindar og
vi ses honnís and hönks!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim