þriðjudagur, febrúar 03, 2004

DAVS!

Jillúh! Las alla nitten røde roser í dag, var að klára hana! :P OG er búin að smsast við Kjarrzen í allt kveld. Áhugaverðar fréttir sem hann hafði að segja.
Já, litla systir mín er snillingur! Hún ætlaði að poppa í örbylgjunni en stillti hana eitthvað vitlaust svo að hún grillaði popppokann sem var heldur ófagur eftir grillunina. Poppið óætt enda bara einhver grillaður smjörklumpur með maísbaunum innan í.
Þetta er í fyrsta skipti í allan dag sem ég sest við tölvuna og um leið kemur hún móðir mín að kvarta! Í alvöru talað má marh ekki einu sinni blogga?!?! hvæs...
Hef ósköp fátt að segja annað en það að ég kíkti til læknis í dag og ég má ekki synda fyrr en á föstudag, er víst ennþá með eitthvað í barkanum! Ég sakna þess að synda, múhúúú....
Og jááá það var tekin bekkjarmynd af okkur og allir strákarnir mættu í jakkafötum o g allar stelpurnar í pilsum og í svörtum sparibolum... Þetta ákvað bekkurinn í gær. Vorum við eini bekkurinn sem ákváðum eitthvað svona :) Ég er bara stolt af mínum bekk. En gmg ég var svo þurr í framan í dag að ég skaust heim að bera á miog krem því að við áttuma ð fara í myndatöku kl. 5 mín í 11 og ég bara ok ég hef tíma en kom til baka og þá var búið að taka myndinar... ég bara ok hvað er í gangi?? Svo að myndatökumaðurinn tók aðra hópmynd af bekknum allir í þetta skipti!! OG við fengum að sleppa mestum hluta af eðlisfræði, jeij, allt mér að þakka! ;P jahm svooona er þetta nú bara!

Ætla að fara lúlla í hausinn á mér! Ég fer alltaf svo seint að sofa... kl. 1, kl hálf 2. kl. hálf 1.... jáh ætla að sofna fyrir miðnætti svona einu sinni!

Lög dagsins eru: "Bohemian Rapsody" með Queen og "Another one bites the dust" EINNIG með Queen! híhí:=)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim