föstudagur, febrúar 13, 2004

Aloha!

Jæja, var á þessu "Vina"balli í gær og skemmti ég mér æðislega vel! Fékk sleikjó þegar ég kom sem glaðning jibbí! Ég var ekki í neinu stuði í byrjun og tók það mig svoldinn tíma að koma mér í stuð en síðari helmingur ballsins var bara helvíti skemmtilegur! Ég held að það hafi verið 2-3 vangalög allt ballið. Skiptir engu því of mikið af þeim myndi drepa stemminguna. Allavegana þá var einhver strákur sem stóð alltaf einn uppi í stiga! Ég vorkenndi greyinu alveg óskaplega og var alltaf á leiðinni að bjóða drenginum upp í smá dans en varð ekkert úr því fyrr en undir lok ballsins að ég skoppaði upp að honum með nokkrum stelpum og við báðum hann um að dansa. Hann var mjög tregur til og dillaði sér ósköp lítið á meðan við dönsuðum af innlifun. Well... sumir koma bara til að horfa á böll þá... :P jæja já!
Í skólanum gerðist mest lítið nema hvað að ég tók eftir að ég er með ógeðslega strengi í hálsinum eftir að hafað kasta höfðinu til í trylltum dans. HAha... áááiii.
Heilagur Valentínus er á morgun og hvað á að gera í tilefni dagsins? Ég bara hef ekki glóru...fyrir utan að ég og Beggfríður ætlum að gista saman. Who knows what we might do!?
Annars þá hef ég ekkert að segja... jú, æfingin í dag var skítapítalétt og bara mjög þægileg.
Æfingin á morgun verður heavy keyrsla. Bara taka á því með stæl;) ójeh beibeh!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim