mánudagur, október 27, 2003

Sniðugt að gera í búð .. helst eikkurri stórri td. Hagkaup

1. Stilltu allar vekjaraklukkurnar í raftækjadeildinni þannig að þær fari í gang á 5 mínútna fresti

2. Búðu til slóð með tómatsósu á gólfið alveg að klósettunum

3. Settu M&M í útsölurekka.

4. Tjaldaðu í útivistardeildinni og segðu öðrum viðskiptavinum að þeir séu ekki boðnir nema þeir komi með kodda úr Rúmfatalagernum með sér

5. Þegar starfsmaður býr sér að þér og býður þér aðstoð, farðu þá að grenja og segðu ,,Afhverju getur fólk ekki bara látið mig í friði?"

6. Horfðu beint í öryggismyndavélina og notaðu hana eins og spegil á meðan þú borar í nefið.

7. Þegar þú handleikur beitta hnífa í búsáhaldadeildinni spurðu þá starfsmann hvort geðlyf séu seld í búðinni.

8. Stikaðum um verslunina með grunsemdarsvip og sönglaðu hátt byrjunarlagið úr ,,Mission Impossible".

9. Feldu þig í fataslám og þegar fólk skoðar föt, stökktu þá fram og segðu hátt ,,Veldu mig .. veldu mig!"

10. Þegar tilkynning hefur heyrst í hátalarakerfinu taktu þá um höfuðið og segðu ,,Oh, þessar raddir aftur....."

11. Farðu inn í mátunarklefa og kallaðu hátt ,,Hey, það vantar klósettpappír hér....

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim