Hæ hæ hæ!
Þetta er bara búin að vera hin fínasta helgi. Fór á föstudag á ball, á laugardaginn mátti ég ekki heimsækja Beggu og heimsótti Dóru þess í stað. Bökuðum við kanilsnúða, þó ég væri alveg föst á því að ég vildi piparkökudeig.....
Við Dóra, Tinna, Hildur ætluðum að fara í keilu á laugardagskvöld, Hildur og ég tókum einn þythokkíleik og vann ég 9-3! tíhíhí... En vorum svo reknar út því við vorum ekki orðnar 16 ára og vorum ekki í fylgd með fullorðnum. Alveg ómögulegt. Ætlar keiluhöllin að verða leiðnleg líka.... Þá er eitthvað mikið að í þessum heimi!!!! Við skunduðum bara heim til Tinnu, fyrsta skipti mitt þar á bæ. Heiðruðum við eðal sjoppuna á Hagamel með viðkomu okkar og keyptum ársbirgðir af nammi. :):´) Fór kvöldið í spjall og msn stúss.... Að lokum gistum við Dóra saman heima hjá mér.
Og í morgun vorum við eitthvað að spassast á msn og að spila á hljómborð. Mjög þroskandi allt saman sko :o)
Varð þetta einn allsherjar letidagur og hef ég ekki verið í meira tjilli síðan ég var með lungnabólgu.
VETRAFRÍIÐ BYRJAR KL. 10 MÍNUTUR YFIR 2 Á MORGUN!! JEIJ JEIJ JEIJ JEIJ!!:):):):):)
Ég kveð að sinni, ætla að fara gera eitthvað gáfulegt, t.d. sofa...


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim