Lyftu þér upp í lyftu!!!
1. Hermdu eftir kappakstursbíl í hvert skipti sem einhver kemur inn í lyftuna. Hermdu svo eftir sírenum þegar einhver fer út úr henni.
2. Snýttu þér og sýndu hinum í lyftunni vasaklútinn.
3. Grettu þig um leið og þú lemur þig í höfuðið. Muldraðu svo: "Æ, þegiði þarna öll. ÞEGIÐI!"
4. Reyndu ad selja einhverjum smákökur í lyftunni.
5. Vaggaðu þér í takt vid lyftuna. Láttu þig svo rekast í vegginn og hnígðu á gólfid.
6. Rakaðu þig.
7. Opnaðu rifu á skjalatöskuna þína eða handtösku, kíktu þar inn og hvíslaðu nægilega hátt til ad hinir heyri: "Ertu með nóg loft þarna inni?"
8. Stattu þögul/l og hreyfingarlaus í horni lyftunnar með andlitið upp að vegg.
9. Þegar lyftan er að nema staðar á hæðinni þar sem þú ætlar út, taktu þá æðiskast og reyndu af alefli ad opna dyrnar med höndunum. Vertu svo vandræðalegur á svipinn þegar dyrnar opnast af sjálfu sér.
10. Hallaðu þér upp að næsta manni eda konu og hvíslaðu: "Bókasafnslöggan er á leiðinni!"
11. Heilsaðu öllum innilega med handabandi sem koma inn í lyftuna. Biddu þá um ad kalla þig Admírál.
12. Klóraðu þér viðstöðulaust og hóstaðu ofsalega á meðan. Geiflaðu svo vörunum og láttu sem að þú sért ad umbreytast í apa.
13. Gerðu jógaæfingar.
14. Starðu á einhvern í lyftunni, glottu fáránlega og segðu svo hátt: "Ég er í nýjum sokkum!"
15. Dreifðu áróðursbæklingum frá Vottum Jehóva.
16. Mjálmaðu af og til. Geltu svo illilega og leiktu kött sem verið er að murka líftóruna úr.
17. Segðu hinum farþegunum að þú þorir ad veðja ad þú komir heilli krónu fyrir inní nefinu á þér.
18. Grettu þig og muldraðu í hálfum hljóðum: "Ah, mér er svo mál, mér er svo mál!" Svo skaltu stynja, líta vandrædalega í kringum þig og segja: "Úps!"
19. Sýndu hinum farþegunum sár sem þú hefur fengið og spurðu þá hvort þeir haldi að það sé nokkuð byrjað að grafa í því.
20. Syngdu "það er leikur ad læra" á meðan þú ýtir stjórnlaust á takkana.
21. Æptu "í fallhlífarnar!" í hvert skipti sem lyftan fer niður á við.
22. Vertu med kælitösku sem á stendur stórum stöfum: "Mannshöfuð".
23. Starðu á einhvern í lyftunni í smá stund, og segðu síðan: "þú ert einn af ÞEIM!" Færðu þig svo eins langt frá viðkomandi og þú getur.
24. Þegar lyftan fer upp, taktu þá fram blokkflautu og spilaðu sálminn "Hærra, minn Guð, til þín".
25. Ropaðu. Segðu síðan: "Ahhh...þetta var gott!"
26. Vertu med leikbrúðu og spurðu farþegana "med búktali" hvort þú megir ýta á takkana fyrir þá.
27. Æddu inn í lyftuna rennandi blaut(ur) í baðslopp og med handklæði um höfuðið. Hristu höfuðið og muldradu eitthvað um það að eiginkonur/eiginmenn þurfi alltaf ad koma á versta tíma.
28. Reyndu ad fá hitt fólkið til að syngja med þér "Meistari Jakob" í keðjusöng.
29. Þegar þögn ríkir í lyftunni, líttu þá í kringum þig og spurðu einhvern: "Var þetta bíp-tækid þitt?"
30. Segðu "Ding!" á hverri hæð.
31. Syngdu hástöfum. Berðu þér svo á brjóst og líktu eftir þokulúðri.
32. Segðu: "Hvernig ætli þessi virki?" og ýttu á rauda hnappinn.
33. Komdu með hlustunarpípu. Hlustaðu á veggi lyftunnar.
34. Teiknaðu ferhyrning med krít á lyftugólfið. Tilkynntu hinum að innan hans sé "þitt svæði".
35. Komdu med stól.
36. Fáðu þér bita af samloku og segðu svo við einhvern í lyftunni: "Vi´tu sjá hva' é e me' í mu''i' um á mé'?"
37. Blástu sápukúlur.
38. Segðu með djöfullegri röddu: "Grrr! Betri líkama! Ég verd ad finna mér betri líkama!"
39. Vertu með teppi og haltu daudahaldi í það. Breiddu það svo yfir höfuð þitt þegar hinir horfa á þig.
40. Hermdu eftir sprengju í hvert sinn sem einhver ýtir á takka.
41. Vertu með sólgleraugu sem á stendur "Röntgengleraugu". Horfdu svo stíft á fólkid í lyftunni og glottu dónalega. Blístraðu.
42. Starðu á þumalputtann á þér og segðu: "Svei mér þá... hann er ad stækka."
43. Ef einhver kemur óvart við þig, láttu sem þér bregði ofboðslega og öskraðu af öllum lífs og sálarkröftum: "Snertu mig ekki! Snertu mig ekki!"
44. Komdu með vatnsbyssu og sprautadu á skó hinna í lyftunni.
45. Burstaðu ósýnilegar pöddur af handleggjum þínum og gargaðu: "Ógeð! Ógeð! Takið þessi ógeð af mér!"
46. Hlæðu geðveikislega í nokkrar sekúndur. Stoppaðu svo skyndilega og horfðu á hitt fólkið í lyftunni eins og það sé eitthvad skrýtid.
47. Taktu upp merkipenna og teiknaðu skrípamyndir af hinum farþegunum á lyftuveggina.
48. Þegar lyftan fer upp, hoppaðu þá eins hátt og þú getur. Lentu svo með miklum dynk. Endurtaktu þetta nokkrum sinnum og öskraðu: "Niður! Fjandinn hafi það, ég sagði NIÐUR!"
49. Skjóttu upp kryppu í einu horninu og urraðu ógnandi á þá sem koma inn í lyftuna.
50. Fitjaðu upp á nefið og þefaðu út í loftið nokkrum sinnum. Lyktaðu svo varlega af manneskjunni sem stendur næst þér. Grettu þig síðan og færðu þig eins langt frá og þú getur.
51. Ef þú ert í lyftu með eikkurri einni annarri manneskju, pikkaðu þá í öxlina á honum/henni og láttu eins og að það hafi verið einhver annar
52. Ýttu á takkann í lyftunni og gerðu þér upp rafstuð.
53. Hringdu í spámiðilslínu úr gemsanum þínum og spurðu hvort þeir viti á hvaða hæð þú sért.
54. Haltu lyftuhurðinni opinni og segðu að þú sért að bíða eftir vini þínum. Leyfðu svo hurðinni að lokast eftir smástund og segðu hátt ,,Nei sæll Guðjón! "
55. Láttu penna detta á gólfið og bíddu þar til einhver tekur hann upp. Öskraðu þá ,,Þetta er minn penni
56. Komdu skrifborðinu þínu fyrir í lyftunni og spurðu svo alla sem koma inn hvort þeir eigi pantaðann tíma
57. Komdu með Twister teppi og spurðu alla sem koma inn hvort þeir nenni að taka einn leik milli hæða
58. Komdu kassa fyrir í horni lyftunnar og spurðu svo lyftugesti hvort þeir heyri eitthvað tifa.
59. Öskraðu ,,Hópfaðmlag!!" og reyndu að fá alla til að faðmast
60. Gerðu sprenginarhljóð í hvert skipti sem einhver ýtir á hnapp


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim