fimmtudagur, október 23, 2003

Hillú

HÆ pípúll!
Rosalega er nú gaman að vera í 10. bekk!! hehehe, segi sona :=) En jájá, ætla þessi próf aldrei að hætta?? HA? Ég er búin að taka ógrynni af prófum seinustu 2 vikur! Algert brjálæði.
Svo er það nýjasta nýtt að mjög margir halda að ég sé með Kjartani! What´s up with that? Má marrh ekki hanga með eða á vini sínum án þess að vera stimpluð kærastan hans eða öfugt? haaa?? segið mér... Við erum ekki einu sinni hrifinn þannig að af hvort öðru... hann er æðislegur drengur og allt gott og blessað með það en ég er ekki hrifin af honum þannig, hvað þá heldur kærastan hans! :o} Annars er ég að fara taka stærðfræði próf á morgun... bara gaman sko:P PLÚS ÞAÐ ER BALL Í FROSTA!!!! Með yfirskriftinni SVITABALL... hljómar geðslegt.. *hóst hóst* Ætla nú samt að mæta. :)
Ég vona að Berglind fara að skríða upp úr flensunni, líka litla systir mín, og fleira fólk sem þjáist af þessum fjára. Eg er svo heppin að hafa verið bólusett fyrir inflúensunni í síðustu viku minnir mig!:):)

Verð að fara núna. BÆJÓ!!!

P.s. Ég er svo happy....

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim