Leiðist þér ... ???
...heima hjá þér þá...
-Rændu klósettsetunni.
-Settu tannkrem á klósettsetuna.
-Smurðu örlitlu vaselíni á alla bestu og dýrustu geisladiskana (mjög lítið svo það sjáist ekki).
-settu handsápu í örbylgjuofninn og stilltu á eina mínútu. Lyktin festist í öllum mat eftir það, sama hversu oft hann er þrifinn.
-Taktu kexköku í sundur og settu pipar eða jalepineo á milli og fylgstu með þegar einhver fær sér bita.
-Ef einhver sem er ekki á vinsældarlistanum sker sig bentu honum þá á að sítrónu safi sé það besta til að stöðva blæðingu. Forðaðu þér.
-Settu smá rönd af vaselíni á klósettrúlluna og stráðu örlitlum pipar á röndina án þess að piparkornin sjáist. Fylgstu með næsta klósettgesti úr hæfilegri fjarlægð. Biddu til guðs að þú lendir aldrei í þessu.
-Steldu fjarstýringunni, stattu fyrir utan stofugluggann, skiptu um stöð á 3ja sekúndna fresti og hækkaðu í botn.
-Finndu stórar og ljótar nærbuxur af gamalli konu eða karli, merktu þær fórnarlambinu og skildu eftir á baðherberginu í partýi.
-Klíndu vaselíni á alla spegla sem þú finnur. Vorkenndu þeim sem reynir að ná því af.
-Hér þarf smá þolinmæði en er vel þess virði ef tekst vel. Hringdu á alla pípara, pítsusendla, sendibíla, rafvirkja, Herbalife sölumenn, húsmálara, og aðra sem eru líklegir til að koma á staðinn og vilja pening fyrir. Gefðu öllum upp sama tíma og stað. Af 50 mæta kannski 20-25. Finndu þér gott sæti og horfðu á allt verða brjálað þegar allir vilja fá borgað.
...hjá bílnum þá...
-Helltu tíu pokum fullum af poppkorni í púströrið.
-Troddu stórri kartöflu inn í púströrið.
-Tjakkaðu bílinn upp á afturhjólunum (framhjólunum á framhjóladrifnum bílum...) en ekki svo hátt að það sjáist þegar fórnarlambið gengur að bílnum.
-Smurðu vaselini á helstu gripfleti bílsins t.d. stýri, gírstöng hurðarhandfang og þess háttar.
-Settu blek í rúðupissið. Stígðu aldrei uppí þennan bíl aftur.
-Gleymdu súkkulaði á miðstöðvaropinu. Alveg óvart.
-Límdu rúðuþurrkurnar fastar með tonnataki.
-Festu fisk á kalt púströrið með vír.
-Festu brauðsneið á vatnskassann. Nokkrum mínutum síðar kemur svartur reykur undan húddinu.
-Helltu barnapúðri í miðstöðina. Stilltu á mesta blástur, settu útvarpið í botn og fylgstu með álengdar þegar bíllinn er settur í gang.
-Troddu nokkrum sardínum niður í miðstöðina. Orsökin finnst ekki fyrr en allt mælaborðið hefur verið rifið af og lyktin löngu orðin hluti af bílnum.
...Í bíó, þá..
-Ef þú ert efst í salnum kastaðu eina krónum niður á salinn
-Öskraðu: Poppstríð!!!!! og hentu fullt af poppi
-Ef þetta er sorgleg mynd gráttu þá á öxl einhvers ókunnugs sem er við hliðina á þér
-Ef þú hefur séð myndina talaðu þá með þegar hver setning kemur...nokkuð hátt
-Hoppaðu upp þegar eitthvað fyndið eða flott gerist
-Hlæðu mjög hátt
-Heltu smá gos á mannin/konuna fyrir neðan þig og ef hún /hann snýr sér við segðu að þetta var sá sem situr við hliðin á þér
-Farðu í hvísluleik
-Þegar þú labbar á sviðinu fyrir framan tjaldið, þykistu detta og farðu að gráta í plati
-Segðu, ef þetta er mynd þar sem eru búningar notaðir (s.s. batman, Harry Potter) að þú eigir þennan búning og farðu að monta þig geðveikt mikið
-Farðu í eitthvað sæti sem að einhver er í og segðu að ef hann færir sig ekki þá segirð þú mömmu/pabba þínum og hótaðu honum það á meðan myndinni á stendur
-Spurðu um smokka í sjoppunni, ef þú færð hann hlauptu inn á klósett og segðu: Anna ég fékk hann!!!!!!
-Taktu með prumpublöðru og sestu á hana
-Sníttu þér á gólfið
-Settu ekki símann á silent heldur á loud
-Segðu upphátt hvað gerist næst
-Taktu með kodda og sæng inn í bíóið
-Stattu á sviðinu og öskraðu: I am your new ruler
-Farðu með skopparabolta og bombaðu honum eitthvert í salinn.
-Taktu mjög mikið af sessum (dót sem lætur þig sitja hærra) og sestu þar sem margir eru fyrir aftan þig
-Dansaðu á sviðinu í hléinu
-Feldu gosið hjá manneskjunni sem situr við hliðin á þér
-Spurðu í sjoppunni hvort þú megir fá 50% afslátt því að þú borgaðir fullt verð fyrir miðann
Ertu doldill prakkari???
Prófaðu að leggja bílnum og sitja í honum með sólgleraugu. Miðaðu með hárþurrku á bílana sem keyra framhjá. Athugaðu hvort þeir hægi á sér.
Kallaðu sjálfa þig upp í innanhúss kallkerfinu. EKKI reyna að breyta rödd þinni.
Stattu föst/fastur á því að netfangið þitt sé: Xena-Warrior-Princess@OCDSB.edu.on.ca eða Elvis-the-King@OCDSB.edu.on.ca
Hvert skipti sem einhver biður þig að gera eitthvað fyrir sig, spyrðu "má bjóða þér franskar með þessu?"
Stilltu ruslafötunni upp á skrifborðið með miða á sem segir "Innbox"
Þróaðu með þér óeðlilega hræðslu við prjónadót
Fylltu kaffivélina með koffínfríu kaffi í þrjár vikur.
Þegar allir eru búnir að losna við koffínfíknina, fyllirðu á með espresso.
Á allar kvittanir skrifar þú; Fyrir kynlífsþjónustu.
Ljúktu öllum setningum þínum með; Samkvæmt spádómum.
Ekki nota punkta.
Eins oft og mögulega hægt; hoppa í stað þess að ganga
Spurðu fólk hvers kyns það sé. Hlæðu brjálæðislega þegar það hefur svarað.
Taktu sérstaklega fram í bílalúgusjoppunni að pöntun þín sé "taka með".
Syngdu með í óperunni
Farðu á ljóðakvöld og spurðu afhverju ljóðin vanti allan ryþma.
Hengdu flugnanet í kringum skrifborð þitt. Spilaðu frumskógarhljóð af diski alla daga.
Tilkynntu vinum þínum fimm dögum fyrir partýið að þú komir ekki því þú sért ekki alveg upplögð.
Biddu vinnufélaga þína að ávarpa þig með Gladiator-nafni þínu, Rock Hard.
Þegar peningarnir koma út úr hraðbankanum hrópar þú "Ég vann! Ég vann!!! Þriðja skiptið í þessari viku!!!!"
Ertu kennari, prófaðu þetta!!!
1. Vertu með hettu á hausnum.... en bara með gat fyrir annað augað!
2. Vertu með einglyrni, reiðhjálm og svipu.
3. Talaðu alltaf lærra og lærra en svo í lokin, bentu á einn nemandann og öskraðu : "HVAÐ VAR ÉG AÐ SEGJA!!!??"
4. Kenndu með fingrabrúðum
5. Veldu af handahófi einhvern nemanda, spurðu svo ymsar spurningar og taktu tíman meðan hann svarar... fussaðu svo og sveiaðu þegar hann svarar
6. Segðu nemendunum að kalla þig "Ljómalind" eða "Pétur Pan"
7. Stoppaðu í miðri kennslu alltíeinu, grettu þig og spurðu nemendurna hvort þú sért með feitann rass
8. Spilaðu Kúmbæja á banjó!
9. Syndu nemendum myndband af pyntingaraferðum nasista... hlæðu mikilli innlifun alla myndina!
10. Vertu með speglagleraugu og talaðu bara tyrknesku... láttu sem þú heyrir ekki í nemendum
11. Byrjaðu kennsluna á að syngja og dansa "Sex Machine" eftir James Brown
12. Tautaðu lágt eftir hverja spurningu sem þú spyrð nemanda "líklegt að api einsog þú myndir vita það"
13. Leggðu nemendum fyrir það heimaverkefni að lesa frá Jóhannes til Njörður í símaskránni fyrir næsta tíma... og taktu fram að það verði próf
14. Láttu alltaf tvo nemendur dreifa rósarblöðum á undan þér þegar þú labbar um stofuna
15. Slökktu ljósin í stofunni, settu í gang kassettu með mávahljóðum og farðu með sálma
16. Biddu nemanda aðeins um aðstoð upp við töflu... láttu þá skrifa undir samning meðan þú græjar á þig stálbrynju og stingur slípirokknum í samband.
17. Byrjaðu kennsluna á því að brjóta tappan af vodka flösku og ösra: "TÍMINN ER BÚINN, ÞEGAR FLASKAN ER BÚIN!"
18. Fáðu hljómsveit til að spila Elvis lög allan kennslutímann en láttu einsog þeir séu ekki þarna...
19. Vertu með syndarveruleikahjálm, gúmmíhanska og öskraðu alltaf þegar einhver talar
20. Láttu einsog kennslustofan sé full af vatni og syntu um allt!
21.Urraðu á nemendurna og kallaðu þá alltaf "háseta"
22. Komdu með lítinn hvolp í tíma... alltaf þegar einhver spyr þig spurningu, þá ferð þú og spyrð hvolpinn
23. Vertu í bleikum kjól, með englavængjum og biddu alla að kalla þig "Krúselíus!"
24. Láttu einsog þú sért hæna!
25. Hafðu auglysingahlé með jöfnu millibili
26. Hnerraðu framan í nemendurna
27. Komdu hlaupandi inní kennslustofuna, froðufellandi og öskraðu ! "ERU ÞIÐ Í STUÐI!!!???? ÉG HEYRI EKKI Í YKKUR!!! ERUÐI Í STUÐI!!??!??!"
Hlutir sem gaman væri að gera á almenningssalerni
1 Settu hendina undir millivegginn og biddu "nágrannan" að lána þér meiri pappír.
2 Segðu hátt: "jakk, ég vissi að ég hefði ekki átt að sleikja þetta"
3 Klappaðu og hrópaðu húrrahrópum í hvert skipti sem einhver mígur, rekur við eða eitthvað annað ?
4 Segðu hátt "hmmmm, ég hef nú ekki séð þennan lit áður"
5 Segðu hátt "ahhhh!!!!! djöll er vatnið kalt"
6 reyndu að stynja og orga eins lengi og þú getur, láttu svo nokkrar kartöflur detta ofan í skálina og andvarpaðu svo djúpt!
7 Segðu hátt "neeihhh,, hvernig komst þetta þangað !??"
8 Segðu hátt "pizza..... minnir mig á pizzu.... með pepperoni"
9 Fylltu 2.l kókflösku og sprautaðu svo undir veggina yfir í hina básana og öskraðu "rólegur litli minn!!! rólegur !!!!"
10 Segðu hátt "merkilegt! það eru fleiri sem fljóta heldur sem sökkva"
11 Segðu hátt "æææ, kommon herra.stubbur, ekki sofna núna !"
12 Spilaðu eitthvað vel þekkt lag á rasskinnarnar
13 Hentu brjósthaldara á gólfið (svo allir sjái hann) og syngdu svo ástöfum "ég er frjáls" lagið...


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim