úúúúhh beibí beibí...
Hædillihó!ÞAÐ ER KOMIÐ VeTrArFrÍ! Jibbííííííí!!! Tjill í heila viku... Frí! I´M FINALLY FREE!! HEHEEEE
En jámm... Ég ætlaði í leikfimi í morgun en kennari var veikur svo ég fór bara með Ingunni heim til mín. Mér finnst það nú bara lágmark að hringja heim til manns og spara manni ómakið að mæta í skólann í fyrstu tvo tímana þegar kennarinn er veikur. Það á að hringja til manns og láta vita!! Döööh.. hvenær ætlar skólinnað tileinka sér þetta sniðuga fyrirkomulag? Ussususs...
Ég ætla upp í Frosta á morgun að gera eitthvað af mér. Það yrði örugglega alveg frábær hugmynd! :P
Svo í ensku er þessi kennarnemi ennþá, og er kennaraneminn systir leikfimikennarans... akkurru kenndi hún ekki bara í staðinn leikfimi í morgun? það myndi enginn taka eftir því að þetta væri ekki Ragga!!! ;) :D
Svo var tvöföld íslenska og hlé og svo leiklist... Sem var alger snilld að venju. Áttum að gera litla spuna leikþætti. Var ég látinn leika kærasta einnar stelpunnar (er svo karlmannleg sko) og Ásgerður lék homma sem varð hrifinn af mér, þetta gerðist sko á ströndinni og endaði þetta í einhverjum ástarþríhyrning. :S :=) Mjööööööög skondið :}
Jæja já jájá..
Lag dagsins: We´re trucking along, I wonder where we are stopping, we´re trucking along, I wonder where we´ll go....
(Þetta lag er úr írskum barnaþætti á BBC Prime "Bits and Bobs") hehehe!!
Jámm, það eru engin takmörk fyrir klikkuninni á þessari síðu:Þ
Bæ bæ...


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim