NÁTTFATADAGUR Í HAGASKÓLA
Jeij, ég var í stærðfræði prófi áðan og varð það alveg rosalega auðvelt!!Svo er ég náttúrulega í náttfötum vegna náttfatadagsins í Hagaskóla. Það eru margir sem eru í náttfötum í dag, mest þó 10. bekkingar, þar á eftir 9. bekkingar og minnst í 8. bekk myndi ég áætla:P
Ég fór og talaði við 10-11 fólkið. Ég spurði í sakleysi mínu hvort Hagaskælingar mættu ekki versla? Og sköllótti leiðinlegi gaurinn svaraði því að unglingar í vesturbæ mættu ekki versla þarna á skólatíma. [Fyrir viku tók ég þá ákvörðun að versla aldrei þarna aftur, og ætla ég mér að standa við hana.] Ég alveg nú??? Og hann sagði að Aksel og Gunnar + einhverjir 10 strákar til viðbótar hefðu eyðilagt fyrir öllum hinum Hagaskælingum að versla þarna. (Mér er nokk sama því þetta er bara fasistapleis) Fóru umræðurnar út í eikkað rugl svo ég kvaddi bara og hjólaði burt með tíkó og á náttfötum:P
Ég ætla að fara upp í skóla núna. Sjáumst síðar beibís... ;)


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim