fimmtudagur, desember 01, 2011

Sund!

Halló!
Já, fundurinn við yfirþjálfarann gekk vel, þó svo það hefði verið mjög stutt. Hann sagði að ég mætti byrja æfa strax með A-hóp, sem er besti hópurinn og ég mætti mæta hvenær sem mér hentaði. Ég reyndi að segja honum að ég væri engan veginn á sama leveli og þessir krakkar en hann lét það sem vind um eyru þjóta og sagði að þetta væri enga stund að koma aftur. Ég hef samt ekkert synt af viti, þ.e.a.s. markvisst æfingasund síðan 2005, þannig að ég veit ekki alveg hvaða ranghugmyndir hann er með hvað varðar líkamlegt ástand.
En hvað um það, ég ætla bara láta vaða og prófa mæta á æfingar. Í versta falli hrökklast ég bara upp úr og fer í e-n barnahópinn þar sem krakkarnir eru 11-15 ára.
Þessir krakkar eru að synda 5-6 km á æfingu en ég hef mest verið að taka 2-3 km á góðum dögum.
Þetta verður mjög áhugavert. Það eru morgunæfingar frá 5:30-7:15 alla virka morgna og ég held að ég gæti prófað að byrja mæta á þær æfingar, ég held að þær æfingar séu styttri. En ég veit ekki hversu auðvelt það verður að vakna í frosti og myrkri til að sprikla í lauginni.
Ég salta þetta bara aðeins, það er nú mannerfðafræðipróf í fyrramálið og svo á ég afmæli um helgina. 

Þar til næst!
Hildur

2 Ummæli:

Þann 9:46 f.h. , Blogger Haffi sagði...

Gangi þér vel í mannerfðunum og til hamingju með afmælið!

Kv. Hafsteinn og Bragi

 
Þann 2:29 e.h. , Blogger Gibba Gibb sagði...

Mannerfðafræðin gekk bara fruntalega vel í gær :) og takk Hafsteinn og Bragi, ég held upp á afmælið á morgun með því að fara fá mér sushi á sushismiðjunni niðri við Höfn! Nomminomnomnom.

 

Skrifa ummæli

<< Heim