miðvikudagur, nóvember 30, 2011

Já, seinasti dagurinn í nóvember

Herró.

Seinasti dagurinn í nóvember er í dag og fullt af góðum vinum eiga afmæli í dag. Til hamingju þið (þó svo enginn lesi þetta blessaða blogg).
Glæstar vonir um að æfa sund ein og upp á eigin spýtur entist ekki lengi. Hlut úr sumari. Svo byrjaði dansinn aftur í haust og ég kenndi 1x í viku og komst eiginlega aldrei á danskvöld. Fruntalega mikið að gera í skólanum. Nú er prófatíðin byrjuð og fyrsta prófið er núna á föstudaginn, mannerfðafræði. Það verður spennandi að sjá hvernig það fer.
Svo klára ég prófin 15. desember og þá munu hlutirnir sko gerast!
Ég hafði samband við yfirþjálfarann hjá KR í gær og tjáði honum það að ég vildi byrja aftur að æfa sund! Ég á fund með honum núna eftir 30 mínútur! Ég er búin að vera drepast úr spenningi, er allavegana með jákvæðan spennuhnút í maganum!

Ég kannski kem með fleiri update seinna,
svona fyrir ykkur Hafsteinn og Bragi, ef þið eruð þarna :) ;)

MBK,
Hildur!

3 Ummæli:

Þann 6:17 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Við erum alltaf hérna! :D

Kv. Hafsteinn og Bragi

 
Þann 8:58 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Jæja, hvernig gekk svo fundurinn?

Kv. Haffi

 
Þann 2:20 e.h. , Blogger Gibba Gibb sagði...

Heyhey!
Sjáðu bara nýjasta póstinn!

 

Skrifa ummæli

<< Heim