laugardagur, maí 19, 2007

Uuuuhm.. svona 8/10


Senn munu prófin taka enda. Hvaða besefa datt samt í hug að hafa erfiðustu prófin seinust í prófatöflunni? Það er alkunna, á heimsvísu að úthald fólks til lestrar og náms fer dvínandi á prófatímum. Eirðarleysi og sólskin eru ekki vinir námsmannsins sem þarf að húka yfir skólabókum. Án gríns!
Ég hef samt verið dugleg að fara í sund og njóta sólarinnar. Það er svo gaman að synda og sólbakast í leiðinni. Bara boo-yah, tvær flugur í einu höggi. Ég er ekki týpan í það að liggja í sólbaði. Það er frekar leiðigjarnt, ég kýs að vera á iði og sólast á þann veginn.
Eðlisfræði og stærðfræði, bestu vinir mínir... NOT! :-( Ég veit alveg af hverju og ég hef bara aldrei nennt að gera neitt í því. En ég ætla að reyna nýta helgina sem best til að sýna fram á að ég get orðið stúdent í eðlisfræði. Þ.e.a.s. læra eins og móðurserðir. Læra líka stærðfræði, því að ég þarf að ná henni. It's a bloody must.
Velgengni mín í prófunum er heldur óljós, er nokkuð örugg að hafa náð öllu, then again one cannot be too sure þegar að það kemur að MR.
Ég er frekar ánægð með sjálfa mig. Hamingjusöm í eigin skinni. Mér finnst hárið mitt allt í lagi meira segja, er að reyna verða ljóshærð aftur, hægt og bítandi, I will get there.
Skv. dagsetningunni núna þá er 1 vika og 5 dagar þangað til að ég fer til Berlínar ásamt henni Valborgu minni. Ég hlakka svo til. VÁTS, það er ekkert smá. :-)

BERLIN BABY!

Peace out kittens.

1 Ummæli:

Þann 12:51 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

ég er ástfangin af tímanum

 

Skrifa ummæli

<< Heim