sunnudagur, ágúst 07, 2005

Obbobbobobb,

Vegna stanslausra hótana þá er komið að nýju bloggi.
Haha...
Já, í dag er víst sunnudagur og frænka mín á afmæli... gamla skranið atarna.
Það sem er helst í fréttum er það að ég er komin í frí frá allri vinnu í bili, seinasti vinnudagurinn minn var á föstudaginn var, og gleymdu starfsfólkið því, en já, ekki eins og að ég sé stór hluti af fyrirtækinu. "Krakki" eins og eigandinn kallaði vinnuafl undir 20 ára aldri niðri á lagernum. Mér líður samt ekki eins og krakka, krakkar eru börn á aldrinum 5-12 ára... Eða... bara leiðindaslangur yfir yngri kynslóðina.
Framundan er afslöppun og þar á eftir skólinn. Elsku skólinn fer að byrja. Til að vera hreinskilin þá sakna ég fúnu veggjanna og mannfánunnar (ekki flóra því að það er víst plönturíkið, en fána er dýraríkið og ég er spendýr og allir aðrir nemendur skólans, svo og kennarar og annað starfslið, kannski einn og einn ekki af þessum heimi...)!
Þá verð ég ekki busalingur, heldur "aðeins-eldri-bekkingur" sem horfi annað hvort niður, upp eða beint framan í nýnemana sem koma í haust.
Það var svo gaman að byrja í menntaskóla, alveg nýtt umhverfi og nýtt fólk. Ég er sumsé ein af þeim sem finnst gaman að kynnast nýju fólki, breytingar fyrir mér geta oft verið til góða, en á hinn bóginn þá er alls ekkert hægt að alhæfa í þeim málum. Eins og stytting náms til stúdentprófs. Menntaskólaárin eru sögð einhver skemmtilegustu ár í lífi fólks, afhverju að stytta gleðilegasta tímann í lífi fólks, er ekki alveg nóg af leiðindum eftir þessi 4 ár?
Já, en að öðrum gleðilegri málum þá var ég að fá mér fataskáp,sá gamli var langt frá því að vera jafn notadrjúgur og ég hefði óskað svo að ég tók mig til og fór að leita að nýjum. Í leiðinni þá fann ég fallegan stól sem kemur til landsins eftir tæpa/rúma viku. Mikið gleðiefni það fyrir fatafríkina mig. Já, í sumar þá hef ég breyst úr matarfrík yfir í fatafrík. Eða það er mér sagt. Pabbi minn er inni í stofu í þessum rituðu orðum að skrúfa draumaskápinn saman sem ég fann í IKEA. Smápása hjá mér og leyfi ég því karlinum að skrúfa og hamra á skápinum að vild.
Ég ætla að segja þetta gott í bili.

5 Ummæli:

Þann 6:05 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Til lukku með skápinn þinn! :D
og með að vera ekki busalingur *-) sem ég er að verða.... og er skíthrædd :D
já vei já....

 
Þann 6:06 e.h. , Blogger Gibba Gibb sagði...

Peril.

 
Þann 8:28 f.h. , Blogger Unknown sagði...

komstu í IKEA?
og heimsóttir mig ekki?
Brútus?

 
Þann 9:46 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Náttúrufræðibraut 2 all the way

 
Þann 1:29 e.h. , Blogger Gibba Gibb sagði...

Ég kíkti eftir þér Klara, enn sá þig ekki. Ég lofa að labba inn í Boltaland og leita að þér þegar ég fer að sækja stólinn minn í þessari eða næstu viku:o)
Lofa!

 

Skrifa ummæli

<< Heim