miðvikudagur, júlí 27, 2005

Nýja leiðakerfið

Djöfulsins rugl er það. Ég hef ekki heyrt mikið fallegt um þetta fjandans nýja strætókerfi sem á að vera betra að sögn þeirra sem nota ekki einu sinni strætó sjálfir því að þeir eru oftast á bíl. Þeir eru búnir að fækka strætóleiðunum, tíðari ferðir á staði sem fólk þarf nú varla að fara á! Djöfulsins leiðindi. Ég vona að þeir breyti aftur yfir á gamla kerfið.
Ég er búin með Harry Potter and The Half-Blood Prince. Ég held að þetta sé besta bókin hingað til frá J.K. Rowling... Hún er bara frekar góð; spennandi, sorgleg og skemmtileg. Þrjú essin. Sem ég var að búa til á staðnum en HEY!:o)
Ætla halda áfram að vinna, inni, þar sem sólin skín ekki á mig og ég verð ekki fagurbrún. Sulking over my delicious Italian gelato. *Sniff* Það hefur sína kosti og galla að vinna inni og að hafa Ís Café fjórum hæðum fyrir neðan mig.

Kostur nr 1.: Get fengið mér ís hvenær sem mig langar.
Ókostur nr 1.: En það frelsi getur skapað offituvandamál ef ekki varlega er farið og aðra kvilla.
Kostur nr 2.:Tveggja úrkosta er mér gefið til að komast aftur upp á 5. hæð; Stigi og lyfta. Ég get gengið bratta stigann með ísinn til að halda rassinum og lærunum í góðu standi á meðan ég gæði mér á ísnum.
Ókostur nr 2.:Lyftan er andskoti freistandi stundum....

4 Ummæli:

Þann 3:46 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

ég hata strætó! þeir eru ekki að gera neinum greiða með að breyta þessu, fjandinn hafi það..... ég veit um eina manneskju sem er nokkuð sátt við þetta og það er rugludallurinn frændi minn hann Hjörleifur, en hann tekur aldrei strætó svo það er ekki mikið að marka... fussogsvei

 
Þann 2:40 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Strætó sökkar.
Jafnvel fyrir breytinguna :D

 
Þann 1:05 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Nostradamus sagði:

On the fifth year of the New Century
Increidbly stupid bussystem
Will scorch the shores of the land of Ice
And will not help Þórir to get to his school.

Fjárans drasl þetta kerfi, HALELÚJA!

 
Þann 11:30 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég heimta nýtt blogg, Hildur! :D

 

Skrifa ummæli

<< Heim