föstudagur, júlí 22, 2005

Sin City

Já, í gær fórum við Ingunn eða In the Gun, saman í bíó á Sin City. Merkilega kúl mynd verð ég að segja. Mjög svo blóðug líka.
Svo er ég að fara á eftir og láta augnlækni kíkja á augað mitt. Ég er búin að vera skrítin í hægra auganu í þó nokkurn tíma svo að ég vona að hann geti læknað augað. Svoo er ég í miðjum klíðum að búa til gallapils, vúhú, rosalega smart, mig vantar bara saumavél. Hehehe:o) Já, en ég redda því! Fer til ömmu minnar og fæ hennar lánaða.
Svo er ég í heilsuátaki til að losa við bumbuna mína. Já, ég er með bumbu. En hún er að fara hægt og sígandi eða spennandi. Hohoho. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, veriði sæl.

3 Ummæli:

Þann 4:25 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Iss, ég er með miklu stærri bumbu en þú. FEIS!

 
Þann 10:42 f.h. , Blogger Elísabet sagði...

Ég er einmitt að vinna í því að búa til svona bumbu. Það gengur ágætlega, það er komið smá. Ég fer hins vegar nánast aldrei í bíó.

 
Þann 4:17 f.h. , Blogger Storeide sagði...

Mér finnst heilsuátakið þitt innihalda of mikið seríjós. Seríjós er ekki gott á bragðið. Borðaðu heldur... rækjuflögur. Þær eru góðar. Bara 190 krónur, risapakki hjá Nings. Þekkelegeh.

 

Skrifa ummæli

<< Heim