Vinna vinna
Já, hæ. Lítið búið að gerast hjá mér ef ég á að vera hreinskilin. Sívinnandi barasta. En stórfrétt dagsins í dag er það að hún Dóra, elsku krúttið mitt, er að koma heim frá mánaðardvöl í Ungverjalandi. Ég er búin að sakna hennar og það verður gaman að fá hana heim. Ví!Já, svo er sólin loks byrjuð að láta sjá sig eftir langa pásu... Ég vona að hún verði lengi lengi og geri alla litlu Íslendingana og túristana sólbrennda og sæta.
Er einhver ykkar búin að sjá Madagascar? Hún er svo yndisleg og skemmtileg! Ég hvet unga sem aldna að fara og sjá hana, ég hló og hló. :-) "Well...This sucks." Hehehe!
En já, ég þarf víst að halda áfram að vinna.... Haaaaa.
Sjáumst rúsínupungarnir mínir!
En takið eftir því að það er kominn nýr Gibboni í hópinn og það er enginn önnur er hún nafna mín Hildur! Sem er búsett í Svíþjóð eins og er. En hún fer að koma heim, svo að þá verður gaman.
Bless beibís;)


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim