miðvikudagur, júní 29, 2005

Guten Abend meine Lieblinger!

Já, svo kann ég eiginleg ekki bofs í þýsku. En , þá er bara komin 29. júní og næstum vika síðan að ég álpaðist til að skrifa inn nýja færslu. Í fréttum er þetta helst:

-Þórir minn er í einnar viku og tveggja daga ferðalagi á Patreksfirði, hann var sumsé bara í einn dag heima og fór svo aftur burt frá mér. Ojæja, hann ræður hvað hann vill gera. Hann kemur aftur á sunnudaginn, ég bara bíð róleg.

-Var í næstsíðasta ökutímanum mínum í dag fyrir ökuskóla 1 og meðfylgjandi æfingaleyfi. Og Knútur kennari kveður mig keyra eins og herforingja. Svo ég ætla að ég sé búin að ná tökum á þessu, það finnst mér! :o) Sá seinasti, ökutími þeas, er á morgun. Sjúbbídúa.

-Mamma á afmæli á morgun, jibbí!

-Litla systir mín var að fara í sumarbúðir í dag, nú er ég laus við hana í smá tíma! Hahaha:) Æj, ekkert illa meint!:-p

Ég fór með foreldrum mínum á Batman Begins. Sú mynd er bara nokkuð góð, hálfhallærisleg og þó, fallega fólkið bætti það nú svolítið upp:P en sögurþráðurinn var nett brenglaður. Ég segi að tæknibrellurnar hafi heppnast og að allur tækniútbúnaður Batmans hafi verið flottur, Batman bíllinn var nokkuð flottur. Einvala lið úrvals leikara, Michael Kaine og Morgan Freeman eru svalir náungar :)
Ætla að láta nokkrar myndir úr Batti byrjar fylgja með, adios!
Bíllinn hér fyrir ofan og hann Morgan fyrir neðan.

Bruce Wayne eða Christian Bail


Michael Caine























Batman
































Sæti og vondi geðlæknirinn Dr. Crane

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim