Quality over Quantity.
Það er náttúrulega langbest þannig. Í dag er búið að vera lúxus veður, 30°C og steikjandi sólarblíða. Ég elska þessa sumardaga sem koma örsjaldan og jafnvel aldrei hér á Fróninu. En sú spurning hefur brunnið á mér seinustu daga, hvaða pamfíll sé, sbr. lukkunnar pamfíll... Ég kíkti á veraldarvefinn, réttara sagt á uppáhaldssíðunni minni, google.com og kom þá upp vísindavefurinn og þar stóð.___________________________
Upphafleg spurning var á þessa leið: Hvað er pamfíll? Oft er sagt: „Þú ert lukkunnar pamfíll.” Við hvað er verið að líkja manni?
Orðið pamfíll er þekkt í íslensku máli frá því á 18. öld. Elsta dæmi Orðabókar Háskólans er úr orðabókarhandriti Jóns Ólafssonar úr Grunnavík, aðstoðarmanns Árna Magnússonar handritasafnara. Orðið var notað um sérstakt spil sem meðal annars er sagt frá hjá Ólafi Davíðssyni í bókinni Gátur, þulur, skemmtanir og vikivakar. Pamfíll var líka notað um laufagosa í spilinu púkki, að minnsta kosti á Suðurlandi. Þriðja merkingin í orðinu er 'náungi', nú oftast í sambandinu lukkunnar pamfíll 'heppinn maður, sá sem lánið leikur við'.

Pamfíll er tökuorð úr dönsku pamfilius þar sem það var notað um laufagosann og sérstakt spil eins og hér en einnig almennt um fólk. Danska orðið er aftur fengið að láni úr latínu þar sem Pamphilius var mannsnafn tekið að láni úr grísku Pámphilos.
____________________________
Og það lesendur góðir er það er gárungar kalla pamfíl.
En....
Í vinnunni minni uppi á Höfða, er að einhverri óskiljanlegri nær einungis hlustað á Fm957 og Kiss FM. Það sem gerir þetta óskiljanlegt er að enginn okkar er að fíla tónlistina og hvað þá útvarpsmennina. Ég styð það að við finnum betri stöðvar til að hlusta á við vinnu. Komið með hugmyndir, ALLAR aðrar stöðvar eru velkonmar, meira segja BBC News stöðin.


3 Ummæli:
TIL HAMINGJU! :D
Manstu þegar ég veifaði þér úr trukk um daginn á strætóstoppistöðinni við Hofsvallagötuna i denn? Trukkurinn hét Pamfíll, sko.
Hahahahaha! NEI? Snilld....
Skrifa ummæli
<< Heim