Októberrassaður
Hæ. Ég hef þa svona sterklega á tilfinningunni að enginn lesi þetta blogg. Sem er í sjálfu sér ágætt, þá er mér frjálst að kvarta og kveina. Mér einhvern veginn finnst ég ekki hafa rétt til að kvarta því ég lifi frekar góðu lífi, í góðu landi, meðal góðs fólks og hef það almennt gott.NEMA ÞAÐ að ég er alltaf að verða veik. Sínkt og heilagt. Hvað á það að þýða? HA? ER það bara sér prógrammerað svo mér líði illa og njóti mín minna... uhh? HA? Ég get ekki farið í sund og æft mig að verða betri í því... (kannski þetta sé bara tákn um að ég eigi að snúa mér að annarri íþrótt eða kannski bara listgrein?) Ég er búin að vera veik núna í meira en mánuð samfellt, alltaf ný og ný sýking eða veiki. Fjandinn hafi það! Má ég ekki bara vera kveflaus, sýkingalaus og bólulaus?(Þetta með bólurnar er samt allt að koma. Vá, hvað það er gaman að kíkja í spegil og sjá andlit en ekki bólu. En já. Gaman fyrir mig. :) )Og að vera í MR samfara skólanum er frekar erfitt. Skil núna afhverju þessir eldri sundkrakkar eru allir hættir. Enginn tími fyrir eitt né neitt nema sund og heimalærdóm. Ef þú vilt njóta þín á menntaskólaárunum er betra að stunda félagslífið af meiri krafti heldur en að festast í rútínunni: vakna-éta-skóli-borða-læra/tölvan/sjónvarp-synda-borða-sofa.Kannast við ofangreindarútínu og þetta er ekki eitthvað sem er beint það skemmtilegasta í heimi til lengdar. Fór í jarðfræðipróf í dag og hélt fyrirlestur um Súmera í Mesapótamíu. Prófið gekk lala og fyrirlesturinn bara ágætlega held ég...Verð að kveðja, sólarhringurinn er senn á þrotum. Shit, I need more time!Lofið mér því að eiga góða nótt. Það er ekkert vit í öðru.Bæ. Hey! Þórir elskan er byrjaður að blogga á ný á
www.folk.is/kiwifuglPS: Minni á að
baggalútur.is hefur hafið störf að nýju!
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim