LOLO!
:) Cómo estás? Muy bien, y tú? estoy triste? hehhe NO NO NO! MUY BIEN!!!Ok, ætla að hætta að kvelja ykkur með minni hörmulegu spænsku kunnáttu. Guð minn á jólunum. Ég er hrædd um að spænskan verði líklega fyrsta tungumálið sem ég þarf að leggja vinnu í að læra... En ég tek áskorunum fagnandi, svo.. ég ætti ekki að verða einhver spænsku tossi.
Við fórum í busaferð um helgina. Djöfulsins snilld! Ótrúlega var gaman, eða ekki ótrúlega heldur trúanlega. Váááááá, það ætti að vera svona ferð 3. hvern mánuð til að hrista uppi í mannskapnum. Ég kynntist góðu fólki. Þessi helgi verður í hávegum höfð. Ætíð!
Jæja, ég er er ekkert búin að synda upp á síðkastið. En ég reyndi að kíkja á æfingu í þar seinustu viku en ég fékk bara hita og pest daginn eftir svo að það fór ekki vel. Ég stefni þó á að mæta á æfingu á morgun eða í dag þar sem kl. er orðin 12. Ekkert múður. 59 dagar í BIkar og mín er bara byrjuð að safna bumbu og veseni.
Jæja, ég kveð þá... ástfangin og drulluþreytt.
Buenos noches.


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim