Tolleruð
Ég er þá opinberlega orðin MR-ingur. Busadagurinn var á fimmtudaginn. VÁ! Ég hef aldrei gert neitt jafn skemmtilegt á allri ævinni!!! Það var kennt til svona 12 og þá vorum við leidd inn í gamla skóla og látin bíða þar. Þar á eftir löbbuðu elstu bekkingarnir í tóga í kringum húsið og hlupu svo í kring og þá var haldin ræða um að það ætti að drepa okkur og slátra... Svo komu 3 grýlur(6. bekkjarstúlkur) inn í stofuna okkar og létu okkur fara úr skónum og standa uppi á borði og syngja skólasönginn (Gaudann), og svo voru nokkrir valdir til að gera rassæfingar.... svo eftir að hafa sungið skólasönginn hástöfum í svolítinn tíma, og nokkrum sinnum í gegn vorum við látin fara niður á gólf og hoppa og gelta, mjála og gala. En á meðan við vorum að mjálma þá sagði ein grýlan: "Þið eruð ömurlegir hanar!!" Þá svarði ég: "En við erum kisur!". hehe! Bekkjarbróðir minn var tekinn upp á töflu og látin diffra! Grýlan: "Diffraðu þetta!" Gummi: "En ég kann það ekki." Grýlan: "AUMINGI! Kanntu ekki að diffra!!!" heheheh, ég var að reyna passa mig að hlæja ekki.Jæja, eftir þessar niðulægingar vorum við leidd út í einfalda röð að aðalinnganginum.. Ég fór fremst fyrir mínum bekk. Allir voru látnir gyrða sig og buxurnar ofan í sokkana Ég var látin syngja í míkrófón sem var tengdur við tvo stóra hátalara úti, látin syngja" Ooops I did it again" með hinni góðkunnugu Britney. Þar á eftir var ég látin skríða undir allar grýlurnar á meðan þær ýttu mér niður stiga... er niður var komið þá var ég dregin til að gera mannlegan píramída og éta hrískökur og lýsisbanana! Ojj , djöfulsins sori! Svo labbaði ég fram á Láru Björk vera að gera magaæfingar undir dtjórn Betu og Jóhönnu. Auðvitað var ég látin skella mér við hliðin á henni að gera magaæfingar og syngja skólasönginn. Lára mundi hann ekkia f stressi en ég hafði lært hann utanbókar um morguninn svo að ég fékk að syngja hann svona 4x þangað til að utanaðkomandi grýla tók mig og leiddi til tolleringar... ég var með gleraugun mín og spurði hvað ég ætti að gera við þau... einn drengur ákvað að taka þau fyrir mig.:) En já, svo var ég tolleruð og reyndar lenti eitthvað skringilega ofan á hausnum á einum strákanna. :P Begga vinkona mín var tolleruð 5 sinnum! Eftir tolleringuna fengu allir að fara niður í Cösukjallara og borða skúffuköku og mjólk. :D
Og um kveldið var fyrir party hjá 6. R. Var reynt að fylla hvern og einn einasta busa. Ég afþakkaði þó. En nokkrir urðu vel hífaðir úr bekknum mínum og líka úr 6. R. Hrafnhildur systir hans Árna Stefáns, Hulda og Doddi voru þrjár manneskjur sem voru mér málkunnugar fyrr þarna. EN svo kynntist ég fleira fólki. Indælis fólk. Ófáar myndir voru teknar af mér með eldri bekkingum þetta kveldið. Og líka á NASA:P úff. Djöful var gaman á ballinu!!! DJ Páll Óskar þeytti skífum af hjartans lyst. OG það var var mikið dansað:)
Takk fyrir mig! :D


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim