föstudagur, september 03, 2004

Framtíðin

Hér skrifar MR-ingur.
Já, ég er busi. Það er líka komið fram við mig sem slíkan. Jájájá! Ég er búin að mæta á hinar ýmsu kynningar á félagslífinu og á ræðukeppni. Allt rosalega skemmtilegt!!! :):) Það er góð tilfinning sem ég hef gagnvart félagslífinu í MR. Þetta mun verða frábær vetur! Þótt að mikill heimalærdómur, próf (já, strax..:S), barkabólga, kvef, hálsbólga og nýtt umhverfi hafi einkennt síðustu viku þá er ekkert smá gaman að vera byrjuð aftur í skólanum. Og í þetta sinn í MENNTASKÓLA...
Híhí, í dag fékk ég út úr fyrsta stærðfræðiprófinu mínu! Ég féll ekki! Jeij!!! :D Skrambi ánægð með það.
Ég er held að ég sé bara í skýjunum þessa dagana. Þótt það sé rigning og sól og regnbogar þááá, þá er bara svo gaman að vera til!
Jæja, ég er farin.

p.s. Nanna MH-ingur er komin með nýtt blogg

víj

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim