Hillúú
Hey já ég gleymdi að blogga í gær. Úpsídúps. Allavegana, það gerðist ekkert sem er sniðugt að segja frá hér svo að ég læt það bara kyrrt liggja.En í dag er bekkjarkveld og ætlar bekkurinn að fara á Sólsting og fara í matarboð til hennar Hildar kennara. :) Rosalega fallegt af henni að bjóða okkur öllum í mat.
Ég skrapp í húðhreinsun áðan og það var vont. En ekki jafn sárt og síðast og konan reyndi ekki að halda uppi samræðum þegar hún var að misþyrma mér. Ég sofnaði næstum í tvígang, en það var allt í lagi. Hún ákvað að farða mig eftir á því að ég er að fara í leikhús og fannst henni ekkert sniðugt að ég færi svona rauð út. Hehe, indæl kona alveg hreint.
Hmmmh, ég vissi ekki að ég ætti fjandmann, en það lítur út fyrir það, einhver með eitthvað blast á mig í commentkerfinu. Ef þér líkar ekki vel við mig þá bara láttu mig vera. Það er eins og ég hafi gert þér eitt eða neitt. So bara fuck off honey;)
Jámms ég er að keppa á morgun, og hinn og hinn.... í 50 flug, 50 skrið, 100 skrið, 100 bak og 200 skrið og boðsundi. Einning ætlum við að setja Íslandsmet í 4*100 m flug! Go KR!
KR er líka með svona innanfélagskeppni, keppendum úr KR var skipt í 2 lið, svart og hvítt og er ég naturligvis í svörtu. Reglurnar er svo hljóðandi: keppandi sem vinnur sinn riðil fær eitt stig, keppandi sem bætir tímann sinn fær eitt stig, keppandi sem gerir bæði í sama sundi fær 3 stig. Það lið sem fær flest stig þarf ekki að sjá um matinn fyrir hitt liðið og leggja á borð og þannig stöff:P
Enívei ég er farin að læra og svo til Hildar kennara. Bleble;)


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim