þriðjudagur, febrúar 24, 2004

Hæbbs

SIGRÍÐUR VINKONA MÍN KOM HEIM FRÁ USA Í GÆR! LOKSINS! ÉG ER BÚIN AÐ SAKNA HENNAR SJÚKLEGA MIKIÐ OG AÐ FÁ HANA HEIM VAR ÆÐISLEGT!
Alveg yndislegt að fá hana, hún kom á æfingu til okkar. Þessi æfing var sjúklega skemmtileg.(Aðallega vegna þess að Sigga var þarna:) Jáhá og eftir æfingu kom hún og Árni, Begga, Eiki og Kjarri öll að fíflast eitthvað og að borða nammi. :o)
Rosalega er sumt bandarískt nammi gott og mjúkt. Ég finn ennþá bragðið með því að hugsa um það sko. :) OG hún gaf mér Bubbilicious tyggjó með vatnsmélónubragði. Ekki slæmt það!
Ég er að velta alvarlega fyrir mér að setja nýja könnun, mér sýnist að niðurstöðurnar liggi fyrir.... Hehe.
En annars þá verð ég að fara læra fyrir þýskupróf. Má ekki verða mér til skammar og fá lágt, ég á að vera góð í þýsku sko :P

Og hey, þú sem sagðir að þú hefðir séð mig og að ég væri feit. Ertu fokking blindur eða bara geðveikur? Ég er sko 1.70 og 55 kg. Ég meina halló, það er ekki þungt og ég er ekki feit :) HAHA!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim